Hugur - 01.01.1995, Side 84
82
John R. Searle
HUGUR
þar sem táknin tákna ekki neitt. Með orðalagi málvísindanna má segja
að um þau gildi aðeins setningafræði, ekki merkingarfræði. Sú
íbyggni sem tölvur virðast hafa er einungis í huga þeirra sem forrita
þær og þeirra sem nota þær, þeirra sem setja eitthvað inn í þær og
þeirra sem túlka það sem frá þeim kemur.
Tilgangurinn með dæminu af kínverska herberginu var að leiða
þetta í ljós með því að sýna að um leið og við setjum eitthvað inn í
kerfi sem hefur íbyggni (mann) og forritum það með formlegu forriti,
þá sést hæglega að hið formlega forrit leggur íbyggninni ekkert til.
Það bætir til dæmis engu við getu mannsins til að skilja kínversku.
Einmitt það atriði í gervigreind sem virtist svo aðlaðandi —
munurinn á forriti og framkvæmd — kollvarpar á endanum þeirri
fullyrðingu að eftirlíking geti verið eftirmynd. Munurinn á forriti og
framkvæmd þess í vélbúnaði virðist sambærilegur við muninn á
hugarferlum og heilaferlum. Og ef við gætum lýst hugarferlum sem
formlegu forriti, þá virðist mega lýsa því sem máli skipir um hugann
án vitundarsálfræði eða taugalífeðlisfræði. En líkingin „hugurinn er
gagnvart heilanum eins og forrit gagnvart vélbúnaði" bregst í
nokkrum atriðum, m.a. eftirfarandi þremur:
í fyrsta lagi hefur munurinn á forriti og framkvæmd þær afleiðingar
að sama forritið má framkvæma á alls kyns fáranlega vegu sem hafa
hreint enga íbyggni. Weizenbaum hefur til dæmis lýst því í
smáatriðum hvernig megi setja saman tölvu úr klósettpappírsrúllu og
glás af steinvölum.11 Á sama hátt má koma forritinu sem skilur
sögur á kínversku fyrir í vatnslögnum, vindvélum, eða manni sem
skilur ekkert nema ensku, og ekkert af þessu öðlast skilning á
kínversku. Steinar, klósettpappír, vindur og vatnslagnir eru í fyrsta
lagi ekki réttu hlutirnir til að hafa íbyggni — aðeins eitthvað sem
hefur samskonar orsakabundna eiginleika og heilinn getur haft íbyggni
— og þótt Englendingurinn hafi allt sem íbyggni krefst, þá fær hann
enga viðbót við sína íbyggni þótt hann leggi forritið á minnið, vegna
þess að með því lærir hann ekki kínversku.
í öðru lagi er forritið eingöngu formlegt, en íbyggin hugarferli eru
ekki formleg á sama hátt. Þau skilgreinast af innihaldi sínu, ekki
formi. Sú skoðun að það rigni er ekki skilgreind sem tiltekin
11 Weizenbaum, J. 1976. Computer Power and Human Reason. San Francisco,
Freeman. Kafli 2.