Hugur - 01.01.1995, Side 87

Hugur - 01.01.1995, Side 87
HUGUR Hugur, heili ogforrit 85 við sjáum að kerfi getur, bæði röklega og í raun, haft mannlega eiginleika á tilteknu sviði án þess að hafa nokkra íbyggni, ættum við að geta staðist þessa freistingu. Samlagningarvélin mín hefur reiknigetu, en enga íbyggni, og í þessari grein hef ég reynt að sýna fram á að tiltekið kerfi getur haft inntak og úttak sem er samskonar og hjá innfæddum Kínverja án þess þó að skilja neina kínversku, hvernig svo sem það hefur verið forritað. Turingprófið er dæmigert fyrir ríkjandi hefð sem hefur verið óhóflega höll undir atferlis- og aðgerðahyggju og ég er viss um að ef atferlis- og verkhyggja yrðu endanlega gefnar upp á bátinn í gervigreindarfræðunum, þá yrði komist hjá miklu af ruglingnum á eftirlíkingu og eftirmynd. í þriðja lagi tengjast þessar leifar af verkhyggju leifum af tvíhyggju; það fæst nefnilega ekkert vit í róttæka gervigreind nema að þeirri tvíhyggjutilgátu gefinni, að þar sem hugurinn sé annars vegar skipti heilinn engu máli. í róttækri gervigreind (eins og í verkhyggju) er það forritið sem skiptir máli, og forrit eru óháð því hvernig þau eru keyrð í vélum. Hvað gervigreind viðvíkur, má raunar keyra sama forritið í rafrænni vél, kartesískum huga eða hegelskum heimsanda. Það sem kom mér hvað mest á óvart í þessum rannsóknum er að mörgum þeim sem vinna við rannsóknir á gervigreind er verulega brugðið við þá hugmynd mína að raunveruleg hugarfyrirbæri geti oltið á raunverulegum eðlis- og efnaffæðilegum eiginleikum raunveru- legra heila. En stundarumhugsun ætti að leiða í ljós að þetta hefði ekki átt að koma mér á óvart; þvi sé ekki fallist á einhverskonar tvíhyggju á róttæk gervigreind sér ekki viðreisnar von. Takmarkið er að endurskapa og skýra hið hugræna með því að búa til forrit, en ef hugurinn er ekki einasta röklega heldur einnig raunverulega óháður heilanum verður þessu takmarki ekki náð, því forritið er algerlega óháð því hvernig það er framkvæmt. Án hugmyndarinnar um að hugurinn sé bæði röklega og raunverulega aðgreinanlegur frá heilanum - sem er róttæk tvíhyggja - er engin von um að endurskapa megi hið hugræna með því að skrifa og keyra forrit, þar sem forrit hljóta að vera óháð heila eða hvaða öðru birtingarformi sem er. Ef hugarferli eru reiknanlegar aðgerðir á formleg tákn, þá leiðir af því að þau hafa engin tengsl sem máli skipta við heilann; einu tengslin væru þau að það vildi einfaldlega svo til að heilinn væri ein af ótal gerðum véla sem gætu keyrt þetta forrit. Hér er ekki á ferðinni hefðbundin tvíhyggja í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.