Hugur - 01.01.1995, Qupperneq 103
HUGUR
Vélmenni
101
öll dæmi um gervigreind hljóti að vera gírkassar fullir af
hugsanahjólum og engu öðru en þau rök sem oftast eru færð fyrir
þessu byggist á misskilningi á aðferðum gervigreindarfræðinnar. Hann
segir að lýsingar á hermilíkani af einhverju vitsmunastarfi geti verið
með ýmsu móti allt frá því að nota orðalag eins og haft er um fólk,
niður í lýsingar á forriti á einhverju æðra máli og jafnvel enn lengra
niður að grunnaðgerðum sem eru byggðar inn í vélbúnaðinn. Síðan
segir Dennett:
Engum dettur í hug að líkanið samsvari sálfræðilegum og
líffræðilegum veruleika alveg niður úr. Því er aðeins haldið fram að á
einhverjum hærri stigum fyrir neðan stig fyrirbærafræðilegra lýsinga
[below the phenomenological level) /.../ samsvari hermilíkanið því
sem líkt er eftir, þ.e. vitsmunastarfi lifandi vera, t.d. manna.'^
Áttum okkur aðeins á hvað þetta þýðir. Þetta þýðir væntanlega að
tölvulíkan af hugarstarfi þurfi að vinna eins og mannshugurinn miðað
við eitthvert safn grunnaðgerða. En nú hljótum við að spyrja hvaða
safn grunnaðgerða? Á hvaða stigi þarf tölvan að vinna eins og heilinn
til að hún hugsi og skilji í raun og veru?
Á hversdagsmáli lýsum við hugarstarfi manna með því að tala um
tilfinningar, skoðanir, geðshræringar, skynjanir, reynslu, vilja, ætlun,
skapgerð o.s.fr. Á máli lífeðlisfræðinnar er heilastarfseminni lýst með
tali um taugafrumur, boðefni, rafstrauma eða eitthvað því um líkt.
Hingað til hafa hvorki hversdagsleg hugtök né lífeðlisfræðileg dugað
til að orða nein náttúrulögmál um atferli fólks og sálarlíf. En
gervigreindarfræði og sálfræði sem byggir á tölvulíkönum gera
yfirleitt ráð fyrir að til sé eitthvert stig á milli hversdagsmálsins og
lífeðlisfræðinnar og með hugtökum á þessu stigi megi fanga eðli
hugarstarfsins, skýra mannlega hegðun og orða lögmál sálarfræðinnar.
Það má lfka lýsa hegðun tölvu bæði með hversdagslegu orðalagi
og með orðalagi raftækninnar. Ef tölva er að tefla lýsum við því sem
hún gerir með orðalagi eins og: „Hún er að reyna að valda
biskupinn.“, „Hún ætlar að hóta drottningunni í næsta leik.“ Sá sem
kann skil á rökrásum og rafeindatækni getur lýst því sem gerist inni í
tölvu með því að tala um straum, spennu, gikkrásir, rökhlið og því
um líkt. En þegar tölvur eru annars vegar er til millistig milli
17 Dennett 1984 bls. 166.