Dvöl - 01.01.1944, Blaðsíða 9
°9 varð það vinsœlt. Vonazt er til, að svo verði enn og ekki þyki minni
fengur að þessari sögu. Þá munu og verða í ritinu þjóðfræðaþœttir og
iausavísur, ef til vill meta einhverjir það að verðleikum. Ferðaþœttir
°ff landlýsingar munu einnig finnast þar.
í þessu fyrsta hefti árgangsins er birtur fyrsti kaflinn úr Ármanni
á Alþingi — tímariti Baldvins Einarssonar. — Er það gert til þess að
kynna mönnum efni þessa merkilega rits, sem hafði gagngerð áhrif á
islenzku þjóðina á sínum tíma. Ef þessu yrði vel tekið, gæti svo farið,
að „Dvöl“ birti fleiri valda en örstutta kafla úr eldri ritum, sem almenn-
i-ngur viðsvegar á landinu á eigi aðgang að. Vœri œskilegt að lesendur
segðu ,.Dvöl“ hug sinn um þetta efni.
Þá mun verða lögð á það höfuðáherzla, að „Dvöl“ komi út reglulega
fjórum sinnum á ári. Það er að vísu mjög torvelt vegna mikilla anna í
Vrentsmiðjunum og ýmsra annarra tálmana, en ef það tekst, vœntir
„Dvöl“ þess, að kauyendur hennar sýni eigi minni reglusemi i viðskipt-
ám við ritið.
Reynt verður að vanda allan frágang ritsins svo sem kostur er, og
mun það flytja allmikið af myndum með efni sinu. — „Dvöl“ hefur
alla sína daga notið starfskrafta óvenju ötulla og fórnfúsra manna,
sem voru trúir og skyggnir i menningarviðleitni sinni og fórnuðu ritinu
tíma sinum og elju án síngirni og án þess að bera úr býtum fyrir það
o-nnað en gleði starfsins. Það er traust „Dvalar“ og framtíðarvon, að
bessir menn — margir hverjir — er.u enn í fylgd með henni og munu
rétta henni örvandi hönd. Og um leið og hún þakkar þeim hinar liðnu
samvistir, heitir hún á fulltingi þeirra og stuðning.
Ritstj.