Dvöl - 01.01.1944, Side 28
22
DVÖL
Þorkell Jóhannesson
Daniel Jónsson
Þórarinn Þóarinsson
Rit§tjórar
„DVÖL“ liefur nú fyrir skömmu fyllt fyrsta áratug œvi
sinnar — en vonandi ekki hinn síðasta. Mér kom til
hugar, að það mundi gleéfa lesendur að fá að sjá hér
samankomna í einn lióp þá, sem veriö hafa ritstjórar
„DVALAR“ til þessa, og fá um leið í stuttu máli lielztu
œviatriði ritsins.
Fœðingardagur „DVALAR" er 24. des. 1933, og munu
margir telja það allmerkan fœðingardag. Að vísu var
liún fyrstu þrjú árin fylgirit dagblaðs, en hún var samt
þegar i upphaii gœdd sjálfstœði og þroska, sem hóf hana
yfir hið líöandi dœgur. Fyrsti ritstjóri hennar var dr.
Þorkell Jóhannesson, landsbókavöröur. Með það í huga
finnst líkelga fœstum, að um grafgötur þurfi aö skyggn-
ast eftir ástœðum fyrir því, hve fljótt ritinu óx fiskur um
hrygg, því aö þjóö veit, að Þorkell er maöur gáfaður og
gagnmenntaður um sögu og bókmenntir. Margt valdra
manna studdi ritið þetta fyrsta ár og lét þvi efni í té,
bæði frumsamið og þýtt, og hefur svo verið ce síðan.
Með öörum árgangi „DVALAR" tók viö ritstjórninni
Daníel Jónsson, efnilegur og gáfaöur ungur maður, og
voru miklar vonir við hann tengdar. En hann átti við
langvarandi lieilsubrest að búa og andaðist skömmu
seinna. Ef til vill varð hann skammlífari vegna þess, að
hann var gceddur óvenjulegum krafti og athafnaþrá, og
gat ekki unað annars staðar en á starfsvelli lífsins.
„DVÖL" dafnaði vel undir hans handleiðslu.
Eftir að Daníel féll frá sáu þeir Þórarinn Þórarinsson
og Vigfús Guðmundsson um ritstjórnina um skeið. Þór-
arinn var þá ungur að liefja blaöamennsku. Síðan er
hann þekktur sem stjórnmálamaður og ritstjóri að víð-
lesnu blaði.
Er „DVÖL" var þriggja ára ákváðu útgefendur liennar
að hœtta útgáfunni. Fékk þá Vigfús Guðmundsson út-