Dvöl - 01.01.1944, Side 65
dvöl
59
Ouðmnndnr Ingi:
Fjögur NinákvæOi
Lieyndardómur yndisþokkans
Þótt leiti ég og skimi um Ijósa daga og nœtur,
er leyndardómur yndisþokkans byrgður fyrir mér.
Þótt skyggnist ég í augu og gefi brosum gœtur,
þá get ég ekkvfundið liann né skilið hvar hann er.
Ekki er liann í lœrdómi og ekki í keyptum vörum,
og ekki neinu því, sem með höndum verður gert.
En eftir hverja rannsókn, er ómaksleit við förum,
um yndisþokkans leyndardóm er hálfu meira vert.
Villtur vegar
Maður er villur vegar.
Veiztu ekki, hver það er?
Stingdu þá hœgri hendi
hljóður í barminn á þér.
Höndin, sem titrar við hjartað,
hún getur svarað þér.
— Maður er villur vegar.
Veiztu ekki hver það er?
Vonlaust
getnr það verið
Þú átt að vernda og verja,
þótt virðist það ekki fært,
allt, sem er hug þínum heilagt
og hjarta þínu kœrt.
Vonlaust getur það verið,
þótt vörn þín sé djörf og
hraust.
En afrek í ósigrum lífsins
er aldrei tilgangslaust.
Fyrir og eftir
Þau stóðu við húsdyrnar
úti ein
með œskunnar leik í hjörtum.
Hann fann hvernig ertnin og
ögrunin skein
úr augunum hennar björtum.
En alvaran snart hann, er
aftur hann vék
frá ungu stúlkunni kysstri,
og tilfinning hennar á titri lék
sem tíbrá í augans mistri.