Dvöl - 01.01.1948, Síða 58

Dvöl - 01.01.1948, Síða 58
56 D VÖL Loma. Mér fannst þokan leggjast svo fast að limgerðinu hjá Hawkins- systrunum, eins og þokuhnoðrarnir hópuðust þar að og læddust hægt og hægt inn fyrir. Ég brosti með sjálfum mér að umhugsuninni um hvernig menn geta í huga sér umbreytt náttúrunni til samræmingar hugsmíðum sínum. í húsinu sást hvergi ljós, þegar ég fór fram hjá. Vinnan gekk reglulega og tilbreytingarlaust. Stóra skóflan tætti upp skurðinn. Áhöfninni fannst að óhöppunum mundi lokið og það hafði góð áhrif. Nýi matsveinninn skjallaði piltana svo laglega, að þeir hefðu glaðir etið steikta steina. Persónuleiki matsveinsins er langtum þýðingarmeiri fyrir svona starfshóp, en eldamennska hans. Að kvöldi annars dags eftir að ég heimsótti Alex, rölti ég niður timburgangstéttina. Þokuslæðing lagði á eftir mér. Ég fór inn í Buffaló- vínstofuna. Feiti Karl þokaðist í áttina til mín og fægði glas. „Viský,“ kallaði ég, áður en honum vannst tími til að spyrja hvað ég vildi. Ég tók glas mitt og settist á einn harða stólinn. Alex var þarna ekki. Timothy Ratz sat og lagði kabal, sem gekk furðulega oft upp, eða fjórum sinnum í röð, og fékk sér glas í hvert skipti. Fleiri og fleiri komu inn. Ekki veit ég hvað við hefðum gert af okkur, ef við hefðum ekki haft Buffalóvínstofuna. Um tíuleytið komu fréttirnar. Þegar hugsað er um slíka atburði eftir á, muna menn sjaldnast atburðaröðina nlákvæmlega. Einhver kemur inn; hvísi heyrist; skyndilega vita allir hvað gerzt hefur, þekkja öll málsatvik. Miss Amý hafði framið sjálfsmorð. Hver flutti fregnina? Ég veit það ekki. Hún hafði hengt sig. Menn lögðu fátt til málanna, ég sá þeir voru að reyna að átta sig á þessu. Þetta sam- lagaðist ekki þeirra hugmyndaheimi. Þeir stóðu í hópum og töluðu í hálfum hljóðum. Hurðin opnaðist hægt og Bjarnar-Jói læddist inn. Lubbalegur haus- inn slettist til og frá og bjánabrosið lék um andlit hans. Kubbslegir fæturnir þokuðust inn eftir gólfinu. Hann litaðist um og kvakaði „Viský? Viský handa Jóa?“ Nú voru menn forvitnir. Þeir skömmuðust sín fyrir það, en brunnu í skinninu af forvitni. Feiti Karl hellti í staup. Timothy Ratz lagði frá sér spilin og stóð á fætur. Bjarnar-Jói hvolfdi í sig úr glasinu. Ég lokaði augunum. Rödd læknisins var hrjúf. „Hvar er hún, Emalín?“ Aldrei fyrr hef ég heyrt rödd líka þeirri, sem svaraði. Köld sjálfs- stjórn, hjúp steypt yfir hjúp af óbifanlegri sjálfsstjórn, ískuldi, sem

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.