Hlín - 01.01.1960, Blaðsíða 28
26
H lín
þjóðinni, fagnaði stofnun Lýðveldis á íslandi. — Hún
fylgdist af áhuga með þeim miklu framförum, sem urðu
með þjóðinni um hennar daga, og fagnaði öllu, sem til
góðs horfði.
Saga Margrjetar Símonardóttur er ekki margbrotin nje
rík af annálsverðum tíðindum, en engu að síður merki-
leg. — Margrjet inti af höndum óvanalega langt æfistarf
nreð trúmensku og dugnaði. Hún tók þátt í sókn þjóðar
sinnar frá örbirgð til velmegunar, frá áþján til frelsis. —
Þótt hennar verði, í þeirri sögu, að engu getið, þá átti
hún, eins og svo margar aðrar alþýðukonur, meiri þátt í
þeirri farsælu þróun, en sumir þeir, er þar komast á
spjöld.
Á íslenskum heimilunr liefur verið snúinn snarasti
þáttur þjóðarheilla. — Á arni þeirra lifði sá eldur, er
þjóðin sótti til þrek og djörfung til viðnáms í þraut og til
sóknar fram á leið. — Að þeim eldi hlúði Margrjet Símon-
ardóttir með árvekni og skyldurækni alla sína löngu
starfstíð. — Mun hennar minst verða með þakklæti, hlýju
og virðingu meðan þeir lifa, sem þektu liana.
Óli Kr. Guðbrandsson,
Villingaholtsskóla í Flóa, Árnessýslu.
Ingveldur Guðmundsdóttir,
Bergi, Reykjavík.
Ingveldur Guðmundsdóttir var fædd 20. mars 1850 að
Torfastöðum í Grafningi. Foreldrar hennar voru: Guð-
mundur Guðmundsson, bóndi þar, og kona hans, Þuríð-
ur Pálsdóttir.
Ingveldur ólst upp hjá foreldrum sínum, en er hún var
19 ára, fór hún til Reykjavíkur til að frama sig, eins og