Hlín - 01.01.1960, Qupperneq 33
Hlin
31
sem mörg ár var gjaldkeri fjelagsins og Ingveldar önnur
liönd og Sigurbjargar Þorláksdóttur, kennara, varafor-
manns. Margar, margar fleiri voru lienn i traustar stoðir í
fjelagsstörfum og æfivinir hennar.
En þegar Ingveldar er minst, þá má því ekki gleyma,
að hún var alvörugefin trúkona, sem studdi alla kristilega
starfsemi, Jivar sem hún kom frant. — Þegar dómkirkju-
prestarnir gengust fyrir fjegjöfum til fátækra fyrir jólin,
var Ingveldur fljót til að fara með samskotalistann liús úr
ltúsi, og urðu fáir fengsælli en hún, sem að því starfi
gengu. — Og enginn var ötulli en ltún í því að safna fólki
á frjálsar, kristilegar samkomur, sem þá var farið að
halda.
Og að því er Hvítabandsfjelagsskapinn snerti, þá vakti
það fyrst og fremst fyrir henni að lialda hinum upphaf-
lega kristilega bindindisgrundvelli fjelagsins, og mun
liún liafa á:tt frumkvæðið að því, að lrver fjelagsfundur
var byrjaður og endaður með bæn og söng, og lielst sá sið-
ur enn.
Ingveldur andaðist 15. október 1935 að Jieimili fóstur-
dóttur sinnar að Bergi við L'augaveg. Hafði ltún dvalið
þar hin síðustu ár æfi sinnar, einkum eftir dauða manns
síns (1. nóv. 1930).
(Kvenfjelagið „Hvíta bandið“ var stofnað í Reykjavík árið
1895, og er því eitt af elstu kvenfjelögum landsins, 65 ára á þessu
ári. — Stofnendur voru þær fóstur-mæðgurnar, Þorbjörg Sveins-
dóttir og Olaíía Jóhannsdóttir. — Olafía var formaður fyrstu ár-
in, eða þangrð til hún fór af landi burt, síðar Ingveldur Guð-
mundsdóttir, þá Guðlaug Bergsdóttir, þá Helga S. Þorgilsdóttir,
þá Jóna Erlendsdóttir s.l. 9 ár. — Sigurbjörg Þorláksdóttir var
varaformaður frá 1912 til dauðadags, 1932, Helga Þorgilsdóttir
hefur verið í stjórn fjelagsins í 30 ár, Oddfríður Jóhannsdóttir
gjaldkeri í 25 ár. — Þær eru ekki altaf að breyta til Hvítabands-
konurnar! — Þær hafa margar sýnt fjelaginu fádæma fórnfýsi og
trygð, eins og t. d. Björg Kolka, sem gekk í fjelagið 15 ára gömul
\