Hlín - 01.01.1960, Side 35
Hlín
33
Hvallátrum. — Björn
Jónsson, ritstjóri, og
systurnar, Herdís og Ól-
ína, og María, voru
þannig systrabörn. J>ó
ekki sje lengra haldið í
aettfærslu Maríu, nægir
þetta til að sýna, að
kjarnakvistir stóðu að
henni í báðar ættir. —
Fjögnrra ára gömulflutt-
ist María, ásamt foreldr-
um sínum í Hvallátur,
og þar dó móðir hennar
ári síðar. — Steinnnn,
systir Maríu, tók þá við
bústjórn hjá föður sín-
um í Hvallátrum, og þar
varð það hennar hlutverk að ganga telpunni í móður-
stað, sem var yngst sinna systkina. Naut hún Jrannig móð-
urlegrar umsjár þessarar eldri systur sinnar, uns hún gift-
ist Jóni Þórðarsyni og reisti með honum bú að Haga á
Barðaströnd. — Mintist María ávalt þessarar systur sinnar
með sjerstakri hlýju. — Þegar hún var átta ára að aldri,
kvæntist faðir hennar seinni konu sinni, Kristínu Pjeturs-
dóttur Jónssonar og Margrjetar Magnúsdóttur, systur
Jochums Pjeturssonar í Skógum, og fluttust þau hjónin í
Skáleyjar á Breiðafirði fjórum árum síðar, en þá var
María tólf ára, og átti liún heima í Skáleyjum upp frá
því, eða í sextíu og níu ár. — Hinn 3. janúar 1894 giftist
hún Jóhannesi Jónssyni, syni Kristínar Pjetursdóttur, og
voru þau hjónin því stjúpsystkin. Ungu hjónin voru á
vist með foreldrnm sínum fram til ársins 1899, en þá and-
aðist Gísli. Tóku þau, María og Jóhannes, þá við búi á
hálfum Skáleyjum og bjuggu þar af mikilli snyrtimensku
fram til ársins 1918, er Jóhannes jjest, en María rak þó
' ‘ 3
f
Maria Gisladóttir.