Hlín - 01.01.1960, Page 57
Hlín
55
Með sömu stilling sorg og gleði barst,
í sölum himins vel má þvílíkt skarta.
Svo góð og einlæg vinum þínum varst,
að von er allir sakni þín af hjarta.
En sofðu rótt og sæl í djúpri gröf,
sorgin þimg og bitur stoðar eigi.
Jeg veit að fyrir handan dauðans hof,
við hittum þig á betri og fegri degi.
Vertu sæl, nú kveðjum við þig klökk,
kæra vina, oft þín skulum minnast.
Vertu sæl, og þýða hjartans þökk!
hað er gott að rnega aftyr finnast!
S. F.
Elísabet Geirmundsdóttir,
Akureyri.
Fædd 16. íebrúar 1915. — Dáin 9. apríl 1959.
„Fegurð, sem hjer er fólgin rós
í frjóum sálum inst,
springur þar út.“
Nýlega andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu frú Elísabet
Geirmundsdóttir, kona Ágústs Ásgrímssonar, verka-
manns, eftir langa og þunga sjúkdómsþraut, aðeins 44
ára að aldri. Hún var borin og barnfædd í „Fjörunni"
lijer í bæ og ól þar allan aldur sinn. Jeg liafði aldrei
kynst þessari konu, en margoft heyrt hennar getið. En svo
l>ar fundum okkar saman í sjúkrahúsinu s.l. haust og vor-
um stofufjelagar nokkurra vikna skeið. Þá liafði hún