Hlín - 01.01.1960, Síða 62
Uppeldis- og fræðslumál.
BARNAVERND.
(Kaíli úr viðtali í liúsmæðraþætti Ríkisútvarpsins um
Barnavernd Reykjavíkur vorið 1959.)
E. Hvað viltu nú segja okkur um starf þitt við barna-
verndina?
Þ. þetta er raunverulega ijölþætt starf og vandskýrt í
stuttu viðtali. — Þó má segja að það sje aðallega leiðbein-
inga- og hjálparstarfsemi, bæði í daglegum viðtalstíína og
á heimilunum.
E. Og hverjir leita þá aðallega til ykkar?
Þ. Hver sem er getur leitað aðstoðar. — Oftast er það
fólkið sjálft, sem kemur með vandamál sín, en einnig
biðja aðrir aðilar um aðstoð handa fólkinu, svo sem lækn-
ar, hjúkrunarkonur og kennarar.
E. Og hverskonar vandamál eru það nú, sem helst þarf
að greiða úr?
Þ. Vandamálin eru margvísleg, en eiga það sameigin-
legt að beðið er um hjálp eða fyrirgreiðslu handa börn-
um. — Til dæmis lriður berklalæknir um aðstoð með barn
berklaveikrar móður, sem fer á heilsuhæli, taugalæknir
um hjálp fyrir taugaveila móður, o. s. frv. — Fólkið sjálft
kemur með ótal vandamál. — Ef til vill veikist móðirin og
enginn er til þess að annast börnin, ef til vill eru foreldr-
arnir í vandræðum með börn sín af ýmsum ástæðum, svo
sem vangefin börn, fötluð börn, o. s. frv. — Einstæðar,
ógiftar mæður eru oft í vandræðum með börn sín, svo og
fráskildar mæður og ekkjur.
E. Það er nú skiljanlegt, að einhver þurfi að koma til