Hlín - 01.01.1960, Side 82
Heimilisiðnaður.
HUGLEIÐINGAR UH HEIMILISIÐNAÐ.
„Við höldum okkur við handiðnaðinn," sagði leiðsögu-
maðurinn. — Torgsalinn liampaði framan í mig kippu af
fallegum handtöskum. Jeg var stödd í Flórens á Ítalíu og
hafði reyndar ekki annan gjaldeyri eftir en fyrir nauð-
synjum á ferðalaginu. — En plasttaskan, sem jeg keypti
dýru verði skömmu áður en jeg fór að heiman, liðaðist
fl jótt í sundur, og jeg varð að burðast með stóra inn-
kaupatösku hvert sem jeg fór, því altaf vill kvenfólkið
hafa með sjer greiðu til að sl jetta úfið hárið og l'leiri smá-
muni.
Jeg skoðaði töskurnar nánar. — Þær voru gerðar úr
ljósu leðri, einfaldar í sniði og stangaðar með hvítum
þræði. — Jeg leit á verðmiðana og taldi aurana í budd-
unni og sá, að jeg mundi aðeins sleppa, ef jeg væri ekki
of stórtæk.
Jeg valdi tösku, sem helst. líktist stórri skál eða öfugum
sykurtoppi. — Lokið sv^igist yfir á framhliðina og var
srnelt á með einfcildum, gyltum lási. — Við toppinn, sitt
hvoru megin, er fest leðurreirn með smelluhnappi og má
því hengja töskuna yfir öxlina, ef vill. — Á framhliðinni
var upphleypt lilja og borgarmerki Flórensborgar og fín-
gerður, gyltur rósasveigur í kring. — Neðst við botninn,
og alt í kring, er stangaður fallegur leðurborði með upp-
hleyptum blöðum. — Taskan rúmar nauðsynlega smá-
hluti, brjef og lítinn böggul að auki, og kostaði liðugar
þúsund lírur, seiri eftir skráðu gengi voru rúmar tuttugu
og sex íslenskar krónur. — Taskan hefur enst mjer vel og