Hlín - 01.01.1960, Page 89
H lin
87
sokka handa bræðrum mínum, fyrir nokkrum árum. —
Vinir þeirra fóru svo að koma til mín og fara þess á leit
að fá að komast í þessi sokkakaup líka. Svo jeg fór að
biðja um meira af þessum ágætu sokkum og sýna þá í
glugga, og nú kaupir Pjetur og Páll hjá mjer íslenska
sokka í sauðalitum.
Líkt þessu gekk það með karlmannanærbuxurnar. —
Jeg hef síðustu árin skift við konu hjer í bænum, sem
prjónar altaf nærbuxur á drengi og karlmenn. — Nú hef-
ur hún hreint ekki undan, og jeg hef fengið nokkuð af
buxum annarstaðar að hjeðan úr nágrenninu.
Ullarskyrtur vil jeg helst hafa úr þelbandi austan úr
Þingeyjarsýslu, og fæ töluvert úr Bárðardal og víðar að.
Nota einnig nærfataband frá Gefjuni mjög mikið.
Fimm konur á Akureyri og nágrenni prjóna fallega,
tvíbandaða vettlinga fyrir mig. — Fjekk þá áður austan
úr Þingeyjarsýslu, og var það ágætt þelband, nú eru það
aðallega karlmannavettlingar sem þaðan koma. — Gaman
væri að fá lallega kvenvettlinga úr bærðu þelbandi. — Jeg
mundi borga þá vel.
Nærfötin og leistarnir þyrftu að vera númerað og fyrir-
myndir að fara eftir. — Því miður hef jeg ekki haft efni
nje tök á að koma upp slíku safni fyrirmynda. — En ef
jeg lil'i lengi, vona jeg að hægt verði að koma þessu í
framkvæmd, því þetta er nauðsynjamál.
Samkvæmt tilmælum formanns Sambandsins, Halldóru
Bjarnadóttur, hafði jeg með mjer hingað á fundinn nokk-
ur sýnishorn af heimilisiðnaðarvörum, sem jeg hef í versl-
un rninni, og vil jeg leyfa mjer að bjóða fundarkonum og
gestum að líta á safnið.