Hlín - 01.01.1960, Side 97
Hlin
95
Björnssyni, fyrir komuna hingað. Það var mikið lán að.fá
þau hjer að því verki, sem vinna þurfti að málningu
kirkjunnar. — Það var vandi, sem þau leystu á þann besta
liátt, sem við óskuðum eftir, og erum einlæglega þakklát
fyrir.
Jeg vona og bið, að hið inra líf kirkjunnar fái einnig
sínar endurbætur, þar geta allir lagt sitt til, með bæn og
söng og lifandi áhuga í öllu safnaðarstarfi.
Biðjum öll Meistarann meistaranna að gefa okkur bæði
viljann og máttinn til þess.
„Lát þitt ríki lýsa vítt
löndin yfir frið að veita.
Láttu fæðast lífið nýtt,
ljós þitt vorum hjörtum breyta.
Láttu yfir lönd og höf
ljóma þína sigurgjöf."
Gyðríður Pálsdóttir, Seglhúðum í Landbroti.
HEILRÆÐI.
Líkna þeim, sem líður neyð,
leiðbein þeim, sem viltur gengur,
rjett þeim hönd, sem hrösun beið,
hjálpaðu öllu á þinni leið.
Þá mun verða gatan greið,
gæfu hlotnast æðstur fengur.
Líkna þeim, sem líður neyð,
leiðbein þeim, sem viltur gengur.
Grættu aldrei gamlan mann,
gakk þú ei á hlut hins snauða.
segðu ætíð sannleikann,
svertu aldrei náungann.
Láttu Drottins boð og bann
benda þjer í lífi og dauða.
Grættu aldrei gamlan mann,
gakk þú ei á hlut hins snauða.
Aðalbjörg Jónsdóttir, Öngulsstöðum.