Hlín - 01.01.1960, Side 111
Hlin
109
að skapa samfelda sögu tímabilsins. — Aðalleiðarljós höf-
undarins við þetta verk var að halda rjettri tímaröð at-
burðanna, svo sem auðið var.
Það hefur verið sannað með góðum og gildum rökurn,
að höfundur Sturlungusafnsins hafi verið einn af sonum
Narfa prests á Kolbeinsstöðum í Hnappadalssýslu, er var
sonur Skarð-Snorra og af hinni alkunnu Skarðverjaætt.
— Berast einkum böndin að Þórði Narfasyni, lögmanni á
Skarði (á Skarðsströnd), dáinn 12. maí 1308.
Það mundi bæði eltir joessu og öðrum merkjum að
dæma láta nærri, að Sturlunga væri samansett nálægt
aldamótunum 1300, og gettir það ekki miklu munað til
eða frá.
Hlutverk kvenf jelaga.
Erindi flutt á ársfundi S. N. K. á Þórshöfn í júnímánuði
1960 af Halldóru lijamadóttur.
Jeg hef kallað þetta spjall „Hlutverk kvenfjelaga", en
það verð jeg að viðurkenna, að umtalsefnið er svo marg-
þætt, að engin von er til að hægt sje að gera því full skil í
stuttu erindi, en jrað er ástæða til að minnast á það samt,
svo þýðingarmikið er það.
Kvenfjelögin eru orðin fastur liður í starfi þjóðarinnar,
sum 50—60 ára gömul, Mikill dmi og miklir kraftar hafa
þar verið lagðir fram. — Konurnar liafa með samtökum
sínum hrint mörgu þörfu máli í framkvæmd, eða lagt því
lið, enda fá þær mikið hrós. — Konurnar eru sterkar,
áhrifaríkar. Þær stjórna heimirium, er stundum sagt. —
Þær stjórna heimilum sínum og hugsunarhætti þar, og
er þá mikið sagt.
Mikið er áunnið og mikið gert, þó býst jeg við, að enn-