Hlín - 01.01.1960, Blaðsíða 113
Hlin
111
og er það mjög lofsvert. — Konunum hefur lengst af þótt
mjög vænt um garðinn sinn. — Sú var tíðin, að Búnaðar-
fjelag íslands hjálpaði konunum með garðyrkjuna og
húsmæðrafræðsluna. — Samvinnunni við þá góðu menn
að nýju ber að fagna. — Einnig starfsemi ráðunauts okk-
ar, sem reynist prýðilega. — Það er gaman að eiga von á
fleiri slíkum. — Þar ber Samböndunum að lialda fast á
rjetti okkar, og víkja hvergi.
Þá teljum við, sem höldum fast við íslenska búninginn
og íslenskan svip á heimilunum, rhikils um vert, að kven-
fjelögin leggi því máli sem rnest lið, svo sterk sem þau eru
og áhrifamikil. — Vil jeg nota tækifærið og skora fastlega
á öll kvenfjelög á Sambandssvæðinu að vinna af lífi og
sál að því máli, að íslenskur svipur haldi sjer á heimilun-
um og heimilisfólkinu. — Heimilin þurfa að bera íslensk
an blæ, ekki alt nýtt, aðflutt. — Sýnið því gamla sóma,
geymið það, virðið það, og þið eruð meiri menn fyrir
vikið.
Það er mjög ánægjulegt, að margar konur, eldri og
yngri, eru að koma sjer upp þjóðbúningnum. — Búning-
urinn útheimtir það að vera útflúrslaus, einfaldur, hann
puntar sig sjálfur. — Og um leið er það þörf, brýn þörf,
að skora á konurnar, bæði þær fjelagsbundnu og liinar,
að halda dauðahaldi í okkar ágæta, fagra móðurmál, láta
ekki spilla því á nokkurn hátt.
Heimilum sínum halda konur á íslandi hreinum og
þrifalegum, en utanhúss þrifnaði er oft ábótavant. — Ein-
stöku kvenfjelög liafa tekið sig til og haft sarntök um
hreinsun á húsagörðum, á lóðum og á ljörunni að vorinu,
t. d. Húsavík, enda var sá bær annálaður fyrir hreinlæti.
— Það liggur við að það sje móðgun við skaparann, sem
skrýðir lög og láð allri fegurð, yndislega sumardaga, að
liafa fjöruna fú'lla af rusli og óþrifnað við húsin.
Gerið það sem þið getið, góðu konur, aðgætið um-
gengnina úti við.
Ykkar áhrif eru víðtæk.
i