Hlín - 01.01.1960, Page 121
Hlín
119
og tilhögun garðanna mjög ábótavant, en áhugi og löng-
un fólksins til að fegra umhverfi heimilanna, virðist al-
rnent fyrir hendi.
Eftir þetta. ferðalag er það sannfæring mín, að brýn
nauðsyn beri til að koma sem allra fyrst upp föstu leið-
beiningastarfi í öllum landsfjórðungum, þar sem saman
færi leiðbeiningar í skrúðgarða- og matjurtarækt.
Jón Rögnvaldsson,
garðyrkjuráðunautur Akureyrarbæjar.
Alheimssamtök húsmæðra.
Þriðja hvert ár er stefnt til alþjóða húsmæðrafunda. —
Þessi samtök hófust í Stokkhólmi 1933 og átti norska
prestskonan, María Michelet, mikinn þátt í stofnuninni.
— Síðan hala þing verið haldin í Washington, London,
Amsterdam, Kaupmannahöfn, Toronto og Colombo á
Ceylon.
Síðastliðið ár (1959) var þingið haldið í Edinborg 3.—
15. sept. — Næst verður Jjað í Ástralíu, sem liefur boðið
tvívegis. — 27 lönd taka þátt í Jressum fjelagsskap. —
Margt er um sveitakonur. Stórborgirnar eru ekki með. —
Eina skilyrðið um þátttöku er að vera húsmóðir.
Aðalefni síðasta fundar var:
„Finna ráð til að bæta heiminn.“
Ráðið: 1. Skilja menningu. hlutaðeiganda. — 2. Skilja
hver annan. — 3. Hjálpa þeim, sem standa höllum fæti.
Hverjir bera kostnaðinn af þessum þingum? — Aðferð-
in er líklega einsdæmi í heiminum: Allir fjelagarnir
leggja fram eitt sent í sjóðinn (Norðurlönd 10 aura). —
Þetta er látið duga. —■ Flugferðin til Ástralíu kostar
10.000 norskar krónur. Borgar hún sig Jressi hálfsmánað-