Hlín - 01.01.1960, Blaðsíða 123
Hlín
121
Kínverski aðalræðismaðurinn í New Yoi'k, P. H.
Chang, skýrir málið á þessa leið:
„Virðingin fyrir foreldrunum er ein af dýrmætustu
dygðum Kínverja, hvar senr þeir eru búsettir í heiminum.
Kínversk börn eru þannig upp alin, að þeim verður
það hugstætt, að þau megi ekki gera foreldrum sínum
skömm.
Kínverskur drengur eða stúlka tekur sjer aldrei neÍLt
fyrir hendur án þess að liugsa um það, hvernig foreldrun-
um nruni geðjast að því: Munu þau vcfða upp með sjer
eða skammst sín fyrir þetta uppátæki barnsins.
Kínverskum börnunr er það ríkast í liuga, að vera for-
eldrunum til sóma.“
Meðal flestra kínverskra fjölskyldna í USA gilda
ákveðnar reglur viðvíkjandi fjölskyldulífinu á heimilun-
um. Máltíðirnar eru álitnar lrátíðlegar athafnir, og skulu
allir meðlimir fjölskyldunnar rnæta til máltíða á rjettum
tíma.
Virðing fyrir trúarbrögðunum, góðir siðir og virðing
fyrir loreldrunum, eru þýðingarmestu atriðin í uppeldi
barna og unglinga meðal Kínverja.
1 Asíu hala trúarbrögðin verið í hávegúm höfð um
aldir.
Hveð veist þú um ætt þína?
Árni M. Rögnvaldsson, skólastjóri, Árskógsströnd, skrifar:
Margir höfðu gaman að því, hjer áður fyr, að rekja ætt-
ir sínar og vissu sumir furðu mikið. — Pessu virðist mjög
hafa hnignað, einkum meðal yngra fólks. — Munu sum
börn og unglingar nú á tímum lítið þekkja til ættar sinn-
ar, enda lítið gert til að hvetja og örva í því efni. — Þó
mun fyrverandi námsstjóri, Snorri Sigfússon, eitthvað