Hlín - 01.01.1960, Síða 124
122
Hlín
hafa minst á það við barnakennara að þeir ljetu nemend-
ur skrifa um ættir sínar. — En þetta hefur ekki verið að-
gengilegt hingað til, þar sem form eða eyðublöð hefur
vantað til að auðvelda starfið.
Nú hefur Prentverk Odds Björnssonar, Akureyri, gefið
út ættarskrárform. Er það ætlað börnurn og unglingum,
og munu margir aðrir hafa gaman að spreyta sig á að
útfylla það, þó að það sje, eins og gefur að skilja, auðveld-
ast fyrir yngstu kynslóðina, með aðstoð móður og föður. —
Bæði móður- og föðurætt er rakin til langa-langafa og
ömmu.
Jeg hef fengið nokkur eintök af þessum skrám, og
lagt þau fyrir eldri bekki skólans hjer í Árskógi. Börnin
fóru nieð sitt blaðið hvert til að fá upplýsingar og gera
uppkast, eins og formið sagði fyrir. Áttu svo börnin að
hafa lokið þessu ákveðinn dag, og fengu þau þá nýtt
blað til að hreinskrifa og ganga frá. — Til þess var varið
vissum tíma fyrir alla. — Betta gekk furðu vel og fyltu
mörg börn út alla dálka ættskrárinnar. — Þau höfðu
áhuga á þessu, og þeim var það sumum metnaðarmál að
komast sem lengst. — Eitt barnið t. d. óskaði eftir að fá að
bæta við síðar, því það ætlaði að leita sjer betri upplýs-
inga, og það lengra til.
Annað blaðið, sem börnin útfyltu, er eign skólans og
geymt þar.
Ættarskrá þessi er ætluð barnaskólunum fyrst og
fremst. — Tel jeg, að það ætti vel við, að sem flestir kenn-
arar Ijetu eldri börnin fá sjer ættarskrá og útfylla hana og
hreinskrifa í ákveðnum kenslutíma. — Ef ekkert verður
gert til þess í skólanum að fá nemendur til að fræðast um
ætt sína, er óvíst að það verði gert síðar.