Hlín - 01.01.1960, Síða 129
Hlin
127
Jurtalitun.
Matthildur Halldórsdóttir, Garði.
Heimulunjólablöð. (Grænir litir.)
Blöðin af heimulunjólanum eru tínd, þegar þau eru
fullsprottin (mega ekki vera farin að sölna), sett í pott og
soðin nokkrar míntúur og altaf rótað í þeirn, svo þau jafn-
sjóðist. — :Þá er bandið, sem lita skal, látið ofan í litinn
hjá blöðunum ,vel blautt. Stöðugt rótað í, svo bandið
mislitist ekki. — IÞegar þetta hefur soðið litla stund, er
bætt við hvítu bandi, og það soðið nokkrar mínútur, en
gæta þarf þess, að það verði ekki eins dökt og bandið, sem
fyrir var í litnum. — Þetta er alt stuttur tími, því liturinn
sýðst lljótt úr blöðunum. — Þá er bandið og blöðin færð
úr litnum, bandið greitt og hrist vel úr því alt rusl. —
Dálítið af blásteini l>ætt út í litinn. — Bandið, sem dekst
var úr undirlitnum, sett ofan í pottinn, og soðið um
stund. Þá er það, sem ljósara var, og einnig hvítt band,
sett í litinn og soðið þar til mátulegur litarmunur er á
því og hinu, sem fyrst var sett í pottinn. — Þá er bandið
fært upp úr og keytu bætt út í litinn. — Bandinu síðan
brugðið ofan í, fyrst því deksta. — Það má seyðast ofur-
litla stund, áður en því ljósara er brugðið ofan í.
Gæta þarl' þess, að band, sem fært er upp úr lit, en ekki
þvegið undir eins, liggi ekki saman í bing, lieldur sje það
hengt á snaga.
Gulan lit er hægt að fá úr heimulunjólablöðum með
því að nota álún í stað blásteins.
Hrímgulir litir úr sölnuðum heimulunjólablöðum.
Blöðin tekin, þegar þau eru orðin sölnuð (brún á lit).
Látin í pottinn og litnum komið í suðu. — Bandið og
litnum komið í suðu. — Bandið látið hjá blöðunum. —
Þetta geta orðið tveir Ijósir litir, með mislangri suðu. —