Hlín - 01.01.1960, Síða 130
128
Hlin
Annan blæ fær bandið, ef keyta er sett í litinn og bandinu
aftur brugðið ofan í.
Litur úr rabarbarablöðum. (Hann er trúrri en úr rab-
arbararótinni.)
Blöðunum og rabarbaranum er dreift um og þau þurk-
uð úti þar til þau eru brún. Þá er þeim safnað saman, sett
í pott og soðið litla stund. Síðan er bandið bleytt og látið
Ii já blöðunum. — Fyrst það, sem dekst á að verða, og eftir
litla stund hitt, sem á að verða ljósara. — Gæta þarf þess
að gera það ekki of dökt, svo það passi við hinn litinn.
Þessa liti má hafa eins og þeir eru, en breyta má þeim
með því að færa upp bandið og blöðin og láta ofurlítið af
keytu í litinn. — Setja síðan bandið aftur ofan í pottinn
og einnig ólitað band. Seytt litla stund, en lengst það
deksta. — Alt er þeta stutt suða.
Blöðin þurfa að vera fallega brún, en ekki orðin hálf
svört, eins og þau verða ef þau liggja í bing og lenda í
miklum rigningum.
Fallegir, gulgrænir litir geta orðið brúngrænir.
Smárinn er tíndur með legg og blöðum. Súrublöðkur,
kjörvell og gulmaðra (má vera smá). Gulmaðran er fyrst
látin í pottinn og soðin dálitla stund, Jjví hún Jrarf lengri
suðu en hinar jurtirnar. — Þá eru hinar jurtirnar látnar
í pottinn hjá gulmöðrunni. (Jurtunum Jiarf áð smá snúa
og dífa, því þær vilja fljóta ofan á leginum.) Þegar Jæssar
jurtir liafa soðið nokkrar mínútur, er bandið látið ofan í
hjá jurtunum, Jiað, sem ljósast á að verða soðið mjög stutt,
næsti litur ofurlítið lengur. og Jniðji litur þar til bandið
hættir að dökna og eru Jrá jurtirnar soðnar. — Þá eru jurt-
ir og band fært upp úr pottinum. Bandið greitt og jurt-
irnar hristar úr því, Jrað dregið á snúru eða snaga. — Blá-
steinn látinn í litinn, liann má vera dálítið mikill. — Þeg-
ar hann er bráðinn, er hrært vel í litnum og bandið látið
ofan í hann. Fyrst það, sem dekst var í undirlit og seytt
um stund, þá næsti litur og seinast Jrað, sem Ijósast var og
einnig hvítt band. (I.jósustu litunum rjett brugðið ofan