Hlín - 01.01.1960, Side 131
Hlin
129
í.) E£ það deksta þykir ekki nógu dökt, má bæta blásteini
í. Þá er bandið tekið upp úr, keytu bætt í litinn, hrært
vel í og það, sem dekst var af bandinu, látið aftur ofan í
litinn, síðan það næst deksta og að lokum er ljósustu lit-
unum aðeins brugðið ofan í. — Gæta þarf þess, að róta
altal’ í bandinu. — Ef óskað er eftir að liturinn verði grá-
grænni er vitrioli bætt út í litinn og bandið látið aftur í
pottinn. — Gæta verður vel að ljósu litunum, að þeir
dökni ekki um of. — Síðan er bandið þvegið vandlega.
Úr tómatblöðum fást grænir litir með mjög líkri aðferð
og lýst er hjer á undan.
íslenska brúðan í Ameríku.
íslenskur kennari á ferð í Ameríku skrifar:
Fyrir nökkru gerðu telpurnar í 12 ára C bekk, sem jeg
kendi í Miðbæjarbarnaskólanum í Rvík, stóra brúðu,
klædda íslenskum búningi. — Allar handavinnu-
kenslukonur skólans lögðu þar sitt til, svo þessi brúða
varð hreinasta meistaramynd. — Brúða þessi var því næst
send til einiiar greinar af UNESCO í New York, sem lief-
ur það takmark að efla kynningu og vináttu allrar æsku.
— Brúðan var sett á sýningu eða basar, sem Sambandið
hjelt þar í borg á munum frá fjölda þjóða. — Hún fjekk
þar verðlaun, sem einn af 10 bestu munum sýningarinn-
ar. — í vor skrifaði jeg til þessa Sambands og sendi mynd
af bekknum mínum, og var jeg á þeirri mynd með börn-
unum. — Tvær konur hafa daglega farmkvæmd þessa fyr-
irtækis og skrifuðu þær mjer aftur. (Þegar jeg kom vestur
heimsótti jeg skrifstofu þessa. — Önnur frúin var þá við-
stödd. — Þekti hún mig af myndinni, er jeg hafði nefnt
ísland, og mundi nafnið mitt. — Jeg sýndi henni ensrin
9