Hlín - 01.01.1960, Blaðsíða 133
Hlín
131
Sitt af hverju.
Lena Hallgrímsdóttir, forstöðukona Laugalandsskóla, skrifar 15.
júní 1960:
Kaera Halldóra!
Þakka þjer fyrir síðast, það var svo gaman að hafa þig hjerna
gestanæturnar í góða veðrinu í vor, og svo lærum við altaf eitt-
hvað af þjer, hvert sinn sem þú kemur. — Nú er skólastarfinu
lokið að þessu sinni, og gekk alt vel, Guði sje lof, og fóru stúlk-
urnar heim frískar og glaðar.
Nú erum við bara eftir, kenslukonurnar að ganga frá húsinu og
garðinum, og svo erum við, eins og þú veist, hver hálfan mánuð
að sumrinu, og ekki finst mjer af veita, ef alt á að vera í lagi. —
Auðvitað þyrftum við helst að hafa einhverja hjálp, úr því við er-
um að basla við garðræktina, en það hefur aldrei fengist neitt fje
til þess.
Þú varst að biðja mig að segja þjer ofurlítið hvernig við höfum
þetta með garðræktina. — Það er nú ekki merkilegt, en þó betra
en ekki neitt. — Við látum hverja stúlku vinna 3—4 daga að vor-
inu, og er þeim skift í flokka og ein kenslukona með til þess að
leiðbeina þeim. — Við erum búnar að eignast yndislegan mat-
jurtagarð með góðu skjólbelti að norðan, svo altaf er hlýtt og
gott að vera þar. — I þessum garði höfum við alskonar græn-
meti, svo sem gulrætur, gulrófur, grænkál, salat, spinat og stein-
selju. — Þessu sáum við að vorinu, en við kaupum hvítkáls- og
blómkálsplöntur í gróðurhúsinu við Brúnalaug, og fáum þar
ágætar plöntur. ■—• Svo höfum við fjölærar jurtir, graslauk og
piparrót. — Alt þrífst þetta ljómandi vel, svo unun er að. — Við
höfum líka jarðarber, sem stundum hafa gefið vel af sjer, en þau
þurfa mikla hirðingu, og gætu áreiðanlega gefið meira af sjer. —
Ribs og sólber höfum við einnig.
Sem sagt, nemendurnir vinna 3 til 4 daga að vorinu við gróður-
setningu á matjurtum og blómum og við allskonar snyrtingu á
lóðinni, og að haustinu aftur nokkra daga til þess að ganga frá
garðinum, öllu grænmetinu og berjunum. — Við förum eina berja-
ferð að haustinu. — Er því fyrsta vikan óregluleg, og skiftast all-
ir nemendur á, og vinna í flokkum.
Það er sultað og gerð saft. — Sumt af kálinu er soðið niður, en
nú orðið er bæði blómkál, hvítkál, ber og rabarbari hraðfryst og
9»