Hlín - 01.01.1960, Síða 144
142
Hlín
svona saman, og þá saumum við, lesum upp og prjónum, og svo
er kaffidrykkja. — Við fengum Steinunni Ingimundardóttur til að
halda námsskeið í bakstri o. fl. þegar hún var hjer á ferð. — Það
var vel sótt.
Hólmfríður Pjetursdáttir, Arnarvatni, skrifar haustið 1959, eft-
ir að hafa lesið 41. árg. Hlínar: — Jeg held að mjer hafi þótt
vænst um, að þú birtir minningargreinar og kvæði um Þorbjörgu
Sveinsdóttur, því að mjer hefur altaf fundist hún einhver stór-
brotnasta kona, sem Island hefur alið: Stórlynd og hreinskilin —
mild og rjettsýn, víkingur í framkvæmdum og störfum. — A því-
líkar konur þarf að minnast sem oftast.
Frá Flatey á Breiðafirði er skrifað í desember 1959: — Nú er
verið að raflýsa kirkjuna okkar, svo einnig þar verði bjart á jól-
unum. Jeg er nýbúin að fá rafljós, og mikill er sá munur.
Af Fljótsdalshjeraði er skrifað í des. 1959: — Nú er blessuð
jólin að færast nær, þessi yndislegi gróðurhólmi á hjarni vetrar-
skammdegisins og mannlífsáranna. Jeg má til með að senda þjer
peningana fyrir Hlín strax, því jeg er af gamla skólanum, og vil
engum skulda. — Má ekki til þess hugsa.
Asmundur Jóhannsson, Húnvetningur, búsettur í Winnipeg, gaf
á sínum tíma 50 þúsund dollara til kenslustóls í íslensku við
Manitoba Háskóla. Stærsta gjöf íslendings til menningarmála.
Hann kendi líka öllum drengjunum sínum íslensku, þegar þeir
voru litlir. Tók þá þegar þeir komu úr skólanum. — Kvenfólkið
var stundum að segja: „Lofaðu nú strákagreyjunum að vera laus-
ir.“ — „Nei, þeir skulu læra íslensku.“ sagði pabbi þeirra. — Nú
njóta þeir uppskerunnar: Eru fulltrúar Islands vestur þar.
Það ættu fleiri íslenskir foreldrar fara að dæmi Asmundar.
Asmundur var skörungur, góður íslendingur, höfðingi í sjón
og raun.
Frú Teresía Guðmundsson, ekkja Barða prófessors frá Þúfna-
völlum, er eini kven-veðurstofustjóri í veröldinni, fyr og síðar,
trúi jeg.
Frá Kvenfjelagi Kópavogs er skrifað vorið 1960: — Það hefur
verið í mörgu að snúast hjá okkur undanfarið, því nú í vikunni
var haldinn hjer aðalfundur Kvenfjelagasambands Gullbringu- og
Kjósarsýslu, en að því standa 12 kvenfjlög, og voru fulltrúar um