Hlín - 01.01.1960, Page 156
154
Hlin
um okkar öl í búðinni. — Þá var glatt á hjalla, ræður haldnar —
5 mínútna ræður lengstar, og sungið. — Hafði jeg keypt nokkra
ölkassa í þessu skyni. — En margan kaffibollann veitti Lilja
þarna. — Verðskuldaði hún þakkir okkar, Skagfirðinga, fyrir
smekkvísi sína og skörungsskap í þessu máli, og veit jeg að hún
hefur fundið, að jeg og aðrir Skagfirðingar kunnum að meta verk
hennar að verðleikum.
Að svo búnu endurtek jeg þakkir mínar til yðar og kveð yður
með vinsemd og virðingu. — Yðar Sigurður Sigurðsson frá Vigur.
Frjettir irá Sambandi norðlenskra kverma: — Það kom til tals
á fundi S. N. K. á Þórshöfn í júní 1960, að stjórnarlaunin væru of
lág, eða þau sömu og þau hafa verið hin síðari ár, 600.00 á ári til
samans.
Stjórnarkonum fanst hinsvegar ekki tímabært að ræða launa-
hækkun þeim til handa, og varð þá þessi vísa til:
Launagildran gein við stjóm,
gullið skein og seiddi og dró.
En allar vildu þær færa fórn,
þeim fanst þær hafa alveg nóg.
Emma Hansen.
GÁTA.
Grafinn, tegldur, teygður, prýddur,
tvinnaður, rendur, holaður,
sorfinn, negldur, skafinn, skrýddur,
skrúfaður, brendur, hnoðaður.
(Ráðning: Silfurbúin svipa.)
Hvar sem hönd kveikir ljós til að, lýsa
fram hjá lífshéska, bróður á degi,
þar er mannúðin rökkrin að rjúfa
og mun ríkja á komandi degi.
Jakobína Johnson.