Hlín - 01.01.1960, Qupperneq 157
Hlin
155
Meðferð hraðfrysta fisksins.
Brot úr ræðu.
Aðalútflutningsvara okkar íslendinga, og sem stendur undir
öllu okkar hagkerfi, er öflun og framleiðsla á matvörum fyrir er-
lendan markað: Fiski og fiskafurðum. — Þetta er viðkvæm vara
og kröfurnar, sem gerðar eru til gæða hennar fara sífelt vaxandi.
Svo vel vill til fyrir okkur, að skilyrði fyrir slíkri framleiðslu
eru sennilega hvergi í heiminum eins góð og hjer. — Veldur því
fyrst og fremst nálægð okkar við auðug fiskimið, og svo að hjer er
loftslagið hreint og frekar svalt.
Það var fyrst eftir að hraðfyrsting kom til sögunnar, að hægt
var að frysta fisk þannig, að flytja hann út ferskan, án þess að
að hann breyti um bragð eða útlit. — A meðan fiskurinn er enn í
okkar höndum megum við ekki slaka á neinum kröfum.
Þær kvartanir um gæði vörunnar, sem fram koma frá kaupanda
(innflytjanda), eru í raun og veru ekki þær verstu. — Hættuleg-
ustu kvartanirnar eru þær, sem aldrei eru bornar fram. Jeg á þar
við húsmæðurnar, sem kaupa fiskinn einhversstaðar úti í löndum.
— Ef þeim ekki líkar varan, kaupa þær hana ekki aftur.
Langt er frá því að verið sje að kasta rýrð á þær leiðbeiningar
og upplýsingastarf, sem hjer hafa verið gerðar um vöruvöndun og
bætta framleiðsluhætti. — Þvert á móti má segja, að hjer hafi
verið lyft Grettistaki, að koma jafn vandasamri og margbrotinni
framleiðslu, eins og hraðfrysta framleiðslan er, í jafngott horf og
hún er, þrátt fyrir aðfinslur, á jafn skömmum tíma eins og verið
hefur.
Margar hendur koma við sögu, frá því að fiskurinn er dreginn
úr sjónum og þangað til hann yfirgefur landið sem hraðfryst flak,
og er þess að vænta, að áróðri og upplýsingastarfsemi þurfi að
beita um nokkurn tíma þangað til allir, sem að framleiðslunni
starfa, hafa fangið nægilega góðan skilning á mikilvægi þessa
málefnis.
Nú vinna margar konur í frystihúsum á Islandi, og vinna sjer
inn marga peninga.
Vonandi vinna þær þarna verk sín af samviskusemi og vand-
virkni, svo mikið sem þar er í húfi, svo hin útflutta vara sje vel
úr garði gerð.