Hlín - 01.01.1960, Page 159
Hlin
157
Munið þið fyrsta „barna ballið“,
brosandi ,feimna hjörð,
hvernig þá skein úr agum allra
einhuga þakkargjörð?
Eða hve lengi hreimar hlýir,
hljómanna sæta mál,
jólatrjes bjarma blikin skæru,
barnslega vermdu sál?
Fylgdust þið með á förnum árunx
fjelagsins þroska braut.
hvernig það fór að fjölga þáttum
fólksins, sem vaxta naut?
Hvernig það reyndist gleðigjafi,
greiddi úr brýnni þörf
margra, sem áttu í örðugleikum?-----------
Inti í kyrþey störf?
Tímarnir breytast. Tötrar hurfu,
tóku við rýmri kjör.
Enn er þó margt, sem óleyst bíður
eftir að finna svör.
Enn þarfnast sjúkir sárabóta,
samúð er hryggum kær,
enn vantar hús, sem aldurhnignum
öryrkjum hæli ljær.
Heiður sje þeim, sem fjelagsformið
festu, áð eigin vild!
Heill þeim, sem jafnan studdu og styrktu
starfið, af dáð og snild!
Heill þeim, sem þágu og bænir báðu,
bundnar við fjelagsmál!
Guðsblessun sje vort sigurmerki!
Sextuga barnsins skál!
Með fjelagskveðju og einlægri heillaósk!
12. nóvember 1955. •
María Rögnvaldsdóttir frá Rjettarholti.