Valsblaðið - 01.05.2008, Page 9
Starfið er margt
deildinni. Henni fylgja góðar óskir frá öll-
um Valsmönnum. Beta og Margrét Lára
eru alltaf velkomnar aftur heim að Hlíð-
arenda.
Þó að þessar tvær frábæru knattspyrnu-
konur hafi yfirgefið Hlíðarenda að sinni
hefur grunnur til framtíðar verið lagður
að því að Valur verði áfram í fremstu röð
í knattspyrnu kvenna.
Þórður Þorkelsson, heiðursfélagi Vals
lést á árinu. Hans er minnst á öðrum stað
í þessu blaði. Knattspymufélagið Valur
kvaddi þennan mikla Valsmann við útför
hans með því að núlifandi formenn Vals
bám kistu Þórðar úr kirkju. Heiðursfélag-
ar Vals eru nú tveir, kempurnar Sigurður
Olafsson og Jóhannes Bergsteinsson.
Herrakvöld Vals var haldið fyrsta
föstudag í nóvember að venju í hinum
nýja glæsilega veislusal félagsins. Um
300 Valsmenn og gestir þeirra skemmtu
sér konunglega. Veislustjóri var Heim-
ir Karlsson og Guðni Ágústsson fyrrv.
alþingismaður og ráðherra var ræðumað-
ur kvöldsins. Er mál manna að ræðan fari
í sögubækur sem ein besta tækifærisræða
sem flutt hefur verið í 25 ára sögu herra-
kvölda Vals.
Utgáfa Valsblaðsins nú er í sjötta sinn
undir stjóm ritstjórans Guðna Olgeirsson-
ar. Frammistaða Guðna er í einu orði sagt
frábær og vonandi njótum við Valsmenn
starfskrafta hans sem lengst. Sögulegt
heimildagildi Valsblaða er ómetanlegt og
hefur félagið fengið mikið hrós frá t.d.
forráðamönnum Skjalasafns Reykjavík-
urborgar o.fl. vegna þess hve saga félags-
ins er vel skráð í gegnum Valsblaðið. Nú
þegar líður að 100 ára afmæli Vals verð-
ur á stefnuskrá að gefa út rit sem spannar
100 ára sögu félagsins í tilefni af afmæl-
inu. Valsblaðið verður mjög mikilvægt
heimildarit þeim sem skráir þá sögu auk
70 ára afmælisrits Vals „Valur vængjum
þöndum“.
Lokaopð
Eins og fram kemur í þessari ársskýrslu
era nú þáttaskil í starfsemi Vals og upp-
byggingu að Hlíðarenda.
Undirritaður hefur verið formaður Vals
undanfarin sex ár og formaður knatt-
spymudeildar félagsins þrjú ár þar á und-
an. Á síðasta aðalfundi lýsti ég því yfir að
nú væri komið að því að annar karl eða
kona tæki við kyndlinum á næsta aðal-
fundi félagsins og leysti þau stórverk-
efni að Hlíðarenda, sem við blasa, en þau
eru annars vegar undirbúningur 100 ára
Stjórn Knattspyrnufélagsins Vals 2008. Efri röð frá vinstri: Dagur Sigurðsson fram-
kvœmdastjóri, Hörður Gunnarsson varaformaður, Lárus Blöndal, formaður kkd.
afrekssviðs Karl Axelsson meðstjórnandi. Neðri röð til vinstri: Sveinn Stefánsson for-
maður hkd. afrekssviðs, Grímur Sœmundsen, formaður og Stefán Karlsson fjármála-
og markaðsstjóri. A myndina vantar Börk Edvardsson formann knd. afrekssviðs og
Hermann Jónasson meðstjórnanda.
afmælis félagsins þann 11. maí 2011 og
hins vegar bygging knatthúss, þegar rof-
ar til að nýju í efnahagslífi okkar. Félags-
menn munu því á næsta aðalfundi eiga
þess kost að sameinast um nýjan formann
Vals og er ég viss um að til þess mun
veljast öflugur einstaklingur, sem mun
taka við góðu búi að Hlíðarenda.
Það er ótrúlega mikill fjöldi hæfra ein-
staklinga, sem eiga það sameiginlegt að
vera Valsmenn. Þessir einstaklingar era
margir hverjir að leggja á sig mikið og
óeigingjarnt starf fyrir félagið og það
skal þakkað.
Allir Valsmenn eru hvattir til að leggja
félaginu áfram allt það lið sem þeir
mega.
Gleðileg jól með þökkum fyrir sam-
starfið á árinu sem er að líða.
Grímur Sœmundsen, formaður
Willum Pór Þórsson þjálfari,
með Bjögga og öðrum
stuðningsmönnum, einbeittur
á svip á heimavelli.
Valsblaðið 2008
;