Valsblaðið - 01.05.2008, Síða 16
Meistaraflokkur karla í handknattleik 2007-2008. Frá vinstri: Höröur Gunnarsson varaformaður Vals, Guðni Jónsson liðstjóri,
Ernir Hrafn Arnarsson, Orri Freyr Gíslason, Anton Rúnarsson, Sigfús Páll Sigjusson, Arnór Gunnarsson, Sigurður Eggertsson,
Ingvar Guðmundsson, Ólafur Haukur Gíslason jyriliði, Fannar Þór Friðgeirsson, Ingvar Árnason, Gunnar Harðarsson, Kristján
Karlsson, Óskar Bjarni Óskarsson þjálfari, Sveinn Stefánsson formaður. Á myndina vantar Pálmar Pétursson, Elvar Friðriksson og
Baldvin Þorsteinsson. Ljósm. Bonni.
Skýrsla handknattleiksdeildar 2008
Breytingar á stjóm handknattleiksdeildar
Vals urðu nokkrar, Stefán Karlsson hætti
sem formaður deildarinnar og tók við
stöðu fjármála- og markaðstjóra Vals, þá
hefur Jóhann Birgisson hætt í stjórn eftir
langt og óeigingjarnt starf fyrir hkd. Vals
eða svo lengi sem elstu menn muna og er
þeim þakkað sérstaklega fyrir vel unnin
störf fyrir félagið.
Stjórn handknattleiksdeildar Vals
starfsárið 2008-2009 er þannig
sklpuð:
Sveinn Stefánsson, formaður
Ómar Ómarsson, varaformaður
Bjami Már Bjarnason, meðstjórnandi
Gunnar Þór Möller, meðstjórnandi
Lilja Valdimarsdóttir, meðstjórnandi
Sigurjón Þráinsson, meðstjórnandi
Meistaraflokkur karla
Þjálfarar mfl.karla em þeir sömu og
undanfarin 5 ár, Óskar Bjarni Óskarsson
(silfurverðlaunahafi frá Ólympíuleik-
unum í Peking) og honum til aðstoðar
er hinn þrautreyndi Heimir Ríkarðsson.
Jóhannes Lange sér um markmanns-
þjálfun, Guðni Jónsson er liðstjóri sem
fyrr og Sólveig Steinþórsdóttir sjúkra-
þjálfari.
Annað árið í röð landaði mfl.karla
stómm titli og í þetta skiptið var það
Eimskipsbikarmeistarartitillinn sem
vannst eftir ömggan 30-26 sigur á Safar-
mýrarpiltum í Laugardalshöllinni. Slegið
var upp mikilli veislu í Vodafonehöllinni
eftir leik þar sem stuðningsmenn fögn-
uðu bikamum með leikmönnum og verð-
ur ekki ofsögum sagt að Gunnari Möller
hafi tekist kraftaverk að breyta íþrótta-
salnum í flottasta veislusal landsins á
aðeins nokkmm klukkustundum.
í Nl-deildinni lentu strákarnir í 3. sæti
eftir harða baráttu um annað sætið við
HK, en Haukar sigmðu deildina að þessu
sinni með nokkmm yfirburðum. Það var
fyrst og fremst léleg byrjun í upphafi
móts sem var þess valdandi að við gát-
um aldrei ógnað Haukum. Liðið sótti í
sig veðrið með hverjum leiknum og má
með sanni segja að þátttaka í meistara-
deild Evrópu hafi hjálpað mikið til við
að slípa liðið saman.
Þá vann liðið sér þátttökurétt í Nl-
deildarbikarkeppninni sem leikin var
milli jóla og nýárs, en liðið datt út eftir
tap á móti Haukum 27-26.
Breytingar á leikmannahópi mfl.karla
Nokkrar breytingar urðu á leikmanna-
hópnum í sumar, Fannar Þór Friðgeirs-
son ákvað að ganga til liðs við Stjöm-
una og Ægir Hrafn Jónsson til liðs við
Gróttu. Til liðs við okkur fengum við
Ólympíuhetjuna Sigfús Sigurðsson sem
kom aftur heim á Hlíðarenda eftir 6 ár í
atvinnumennsku í Þýskalandi og á Spáni.
Þá fengum við Heimi Örn Árnason sem
valinn var besti leikmaður Nl-deildar-
innar á síðasta tímabili frá Stjörnunni
en Heimir er okkur að góðu kunnur síð-
an hann lék með Val árin 2004 og 2005.
Þá tóku Valsaramir Hjalti Gylfason, Dav-
íð Ólafsson og Arnar Sveinn Geirsson
skóna fram að nýju eftir nokkurt hlé frá
handboltaiðkun. Arnar Sveinn lék reynd-
ar sinn fyrsta meistaraflokksleik í hand-
bolta og fótbolta í september sl. þrátt fyr-
ir að vera aðeins 17 ára gamall en það
hefur ekki gerst í langan tíma að leik-
maður félagsins spili með meistaraflokki
í báðum greinum.
Meistaraflokkur kvenna
Stelpurnar urðu Deildarbikarmeistarar
á milli jóla og nýárs í fyrra undir stjórn
Ágústs Jóhannssonar, en það var í fyrsta
16
Valsblaðið 2008