Valsblaðið - 01.05.2008, Page 50
Stærsta stundln að vima
íra og komast í úrslitakeppni
EM í knattspyrnu
Katnín Jónsdóttir er leikreyndasti leikmaður
íslenska kvennalandsllðslns í knattspyrnu
og fyrirliði Vals og landsliðsins. Hún segir
kvennakn attspy r nu í mikllll sókn
Katrín Jónsdóttir er ein af stelpunum
okkar sem hafa slegið í gegn hjá íslensku
þjóðinni á sambærilegan hátt og strák-
arnir okkar í handboltanum. Hún hefur
lagt gríðarlega hart að sér ásamt samherj-
um hjá Val og landsliðinu í að ná árangri
og hefur óbilandi trú á því að markmiðin
náist. Hún er sannur leiðtogi innan vallar
sem kröftugur fyrirliði og utan vallar er
hún góð fyrirmynd ungra íþróttamanna,
geislandi af lífsgleði, bjartsýni og heil-
brigði. Henni finnst gríðarlega mikil-
vægt að vera heiðarleg og góð við aðra
og finnst baktal óþolandi og gjörsamlega
óviðunandi.
Sætí kvennalandsliðsins í
úrslitakeppni EM tryggt
„Tilfinningin var ólýsanleg þegar við
tryggðum okkur sæti í úrslitakeppni EM
í haust,“ segir Katrín þegar hún hugsar til
þess stóra áfanga þegar íslenska kvenna-
landsliðið vann Ira örugglega í haust
3-0 í mikilvægasta knattspyrnuleik sem
íslenska kvennalandsliðið hefur leikið.
„Maður táraðist hreinlega og trúði þessu
varla. Þetta var alveg yndislegt og fyrst
núna sem maður er að átta sig á þessu,“
segir Katrín sem var fyrirliði í leiknum
og leikreyndasti leikmaður landsliðsins.
„Við undirbjuggum okkur á hefðbund-
inn hátt. Fókusinn var á okkar leik. Hvað
við gátum gert til að VINNA leikinn.
Jákvæðnin var í fyrirrúmi.“
Tœp 70% þjóðarinnar fylgdist með
leiknum við Ira í beinni útsendingu í
sjónvarpinu og er það metáhorf á lands-
leik í fótbolta. Hvað segir þú um þennan
áhuga þjóðarinnar og stuðning? „Mér
finnst þetta alveg frábært. Ótrúlegt að
svo margir hafi fylgst með. Og sérstak-
lega ánægjulegt að hafa getað komið með
jákvæðar fréttir inn í þjóðfélagið eins og
ástandið er á íslandi núna. Geri mér full-
komlega grein fyrir að þessi sigur leys-
ir ekki vanda fólks, en gott ef íslending-
ar gátu brosað og gleymt fjárhagnum, þó
ekki væri nema í nokkrar klukkustundir."
Nú hefur þú átt afar farsœlan feril í
fótbolta og ert leikreyndasti leikmaður
landsliðsins. Hvaða markmið eru raun-
Eftir Guðna Olgeirsson
hœf fyrir úrslitakeppnina í Finnlandi
nœsta sumar? „Ég tel okkur eiga fullt
erindi í þessi lið sem verða þarna. Og
markmið okkar, eins og áður, er að fara
í hvern leik til að sigra. Nú höfum við
náð okkar markmiði að komast á EM, og
þá er mikilvægt að vera ekki bara sátt-
ur með það. Það þarf að setjast niður og
setja sér ný markmið. Og það munum við
sem hópur gera. Ég hef sjálf sem mark-
mið að komast í mitt langbesta form. Vil
gera allt sem ég get til að stuðla að því að
liðið nái góðum árangri. Þetta krefst mik-
illar fórnar og gríðarlegrar vinnu.
Hvernig er stemningin í landsliðinu?
„Mjög góð. Góður hópur og liðsheildin
frábær. Allir leikmenn hópsins er líka svo
einbeittir í að ná árangri og hafa æft rosa-
lega vel og lagt mikla vinnu á sig. Þetta
ásamt góðri stjórn, og þá á ég við lands-
liðsþjálfara, Klöru Bjartmarz sem er allt í
öllu hjá KSÍ og stjóm KSÍ, hjálpar til við
að ná settu marki.“
Frábær tími hjá Val undanfarin ár
með einstökum þjálfara
Katrín hefur leikið stórt hlutverk undan-
farin ár í geysisterku og ótrúlega sigur-
sœlu kvennaliði Vals sem er líklega sterk-
asta kvennalið Islands fyrr og síðar. Hver
er lykillinn að þessum árangri að þínu
mati? „Meistaraflokkur kvenna er frá-
bær hópur. Það er engin tilviljun að við
köllum okkur „The Farnily". Þjálfunin
er mjög góð og hópurinn breiður. En við
höfum verið með hvað breiðasta hópinn.
Það skiptir gríðarlega miklu máli. Einn-
ig verð ég að segja óbilandi trú á að ná
árangri, bæði hjá leikmönnum og þjálf-
umm. Þetta er eitthvað sem Valur hef-
ur kennt mér. Mér hefur liðið mjög vel
hjá Val og hef bætt mig mikið sem knatt-
spyrnukona, aldrei of seint að bæta sig.
Stuðningurinn hefur verið sérstaklega
góður í stóm leikjunum. Og eftir að við
fórum að spila á Hlíðarenda að nýju hef-
ur skapast ekta heimavallarstemning. Það
myndaðist einnig góð stemning á þessu
ári þegar við mættum á leiki hjá körfunni
og handboltanum og öfugt. Skapar góða
stemningu innan félasins. Þessu verður
að halda áfram.“
Hvernig myndir þú lýsa Elísabetu
Gunnarsdóttur (Betu) þjálfara? Hvern-
ig líst þér á hópinn á næsta tímabili?
„Við Beta höfum verið vinkonur frá því
við vorum 15-16 ára. Það var því svolít-
ið skrýtið að mæta á fyrstu æfinguna hjá
henni 2004. En ég sá fljótt að hún er frá-
50
Valsblaðið 2008