Valsblaðið - 01.05.2008, Síða 53
'úm 1 * '£MM\
- Hversu marga leiki spilaðir þú
vel?
„Ég var jafn óánægður með mig eins
og gengi liðsins. Mér fannst ég spila „allt
í lagi“ og fyrir mér voru það gríðarleg
vonbrigði. Ég hafði háleit markmið fyrir
sumarið. Mig Iangaði eiginlega meira að
verja titilinn en vinna til hans í fyrra.“
- Hvort hentar þér betur að vera
miðjumaður eða vinstri bakvörður?
„Þjálfarinn vill meina að mín kjör-
staða sé í bakverðinum og ég er næstum
því sammála honum. Stundum finnst mér
ég ekki alveg nýta alla hæfileikana í bak-
verðinum, að ég gæti gert það meira inni
á miðjunni. Aftur á móti var það alltaf
staða sem ég var að leysa þegar meiðsli
komu upp. Mér er reyndar nokk sama
hvar ég spila svo fremi að ég sé í liðinu.“
- Landsliðsmaður sagði mér um dag-
inn að hann myndi varla nenna að œfa
fótbolta ef hann fengi ekki borgað fyrir
það. Er þetta almenn skoðun leikmanna í
dag? Verð menn ekki að hafa ástríðu fyr-
ir íþróttinni til að ná árangri‘“
„Ég kannast ekki við þetta og sjálfur
æfi ég mjög mikið aukalega. Það er vit-
anlega aukaatriði hvort maður fái borgað
fyrir að spila. Ég skil ekki hvernig hægt
er að ná árangri ef ástríðuna skortir því
það er hún sem knýr mann áfrarn."
- Hvernig er andinn í landsliðinu mið-
að við sumarið áður?
„Ég var bara í landsliðinu hjá Loga
og Asgeir, en ekki Eyjólfi, en ef ég ber
stemningu þeirra saman við það sem er
að gerast núna er hún allt önnur og betri
núna. Það er miklu meiri léttleiki í gangi
en samt er erfltt að festa orð á þetta. Það
er einhvern veginn miklu skemmtilegra í
þessu núna.“
- Ertu sammála mér í því að leikmenn
séu yfirleitt betri á landsliðsœfingum en í
leikjunum?
„Algjörlega. Þetta er einhverra hluta
það sama og ég upplifði hjá Val í sum-
ar. Gæði leikmanna skína í gegn á æfing-
um en í leikjum er eins og margir þeirra
hverfi inn í skelina. Það hlýtur að hafa
með hugarfarið að gera. Ef við förum inn
á völlinn með því hugarfari að við getum
ekki unnið, mun það nákvæmlega gerast.
Menn verða að hafa trú á sér en reyndar
finnst mér þetta vera að koma hjá lands-
liðinu. Fyrri hálfleikur á móti Skotum í
sumar var mjög góður að mínu mati þar
sem liðið hélt boltanum vel og var svaka-
lega svekkjandi að fá ekkert út úr honum.
Ég hef mikla trú á okkur í þessum riðli.“
- Mætti huga meira að matarœði, hug-
arþjálfun, markmiðasetningu og slíku hjá
Val og landsliðinu?
„Það er ekki langt síðan ég gerði mér
grein fyrir því hversu mikilvægt er í fót-
bolta að hafa hugarfarið í lagi, vera með
bullandi sjálfstraust. Það þarf að vinna
miklu meira með sjálfstraustið og ég á
margt ólært í þeim efnum. Fyrir leiki þarf
ég virkilega að hugsa um hvað ég ætli að
gera og beita markvissri hugarþjálfun til
þess að spila almennilega. Ég byrjaði að
gera þetta fyrir tímabilið 2005 og mér
fannst verða breyting hjá mér hvað varð-
ar mína getu samhliða því. En ég á samt
að geta miklu betur.“
- Við hverju býstu af Val nœsta sumar?
„Við ætlum kláralega að berjast um
Islandsmeistaratitilinn og ég tel okkur
eiga góða möguleika á að endurheimta
hann. Við viljum líka sýna og sanna að
við erum ekki eins daprir og við vorum
sumarið 2008.“
- Hvernig líst þér á þá leikmenn sem
hafa komið til Vals?
„Mér líst mjög vel á þá alla. Ólaf-
ur Páll og Pétur Maack eru fljótir leik-
menn, sem okkur vantaði klárlega, ekki
síst hvað varðar hraða fram á við. Reynir
Leós og Ian Jeffs eru reynslumiklir leik-
menn sem munu nýtast okkur vel.“
- Æfirðu mikið umfram hefðbundnar
œfingar?
„Já, ég geri það og sumir vilja meina
að ég æfi of mikið. Eflaust er eitthvað til
í því. Ég hef varla tekið frí eftir sumar-
ið, vegna landsleikjanna en ætli ég slaki
ekki aðeins á um jólin. Það er ekki gott
að lenda í ofþjálfun."
- Kitlar atvinnumennskan aftur?
„Þegar ég kom frá Silkeborg sagði ég
að þetta væri orðið gott, að ég væri búinn
að prófa en atvinnumennskan gekk illa.
Ég myndi vitanlega skoðað allt spenn-
andi sem mér stæði til boða. Mig langar
mest að eiga gott tímabil hjá Val og klára
ferðamálafræðina í háskóla fslands sem
ég er hálfnaður með.“
- Hvort er talað meira um handbolta
eða fótbolta heima lijá þér?
„Það er eiginlega mest árstíðarbund-
ið. Þessa stundina er mest talað um hand-
bolta og ég er mjög stoltur af Berglindi
sem var valinn besti leikmaðurinn í riðla-
keppninni í undankeppni EM á dögun-
um. Það er mikið afrek.“
- Hvernig stríðir hún þér helst, íþrótta-
lega?
„Hún stríðir mér nú ekki mikið, held-
ur segir hún að ég sé ekki nógu ákveð-
inn og að hún vilji helst sparka í mig fyr-
ir leiki til að koma mér í rétt stand. Ég
hef heyrt þetta frá fleirum og er sammála
þessu. Ég er frekar róleg týpa og skipti
ekki oft skapi en það er heppilegt ef ein-
hver brýtur á mér í upphafi leiks því þá
verð ég reiður og spila betur. Ég verð að
vinna í þessu eða ráða mann til að gefa
mér utanundir fyrir leiki.“
- Ertu sáttur við umgjörðina í kring-
um Val?
„Það er hugsað mjög vel um allt sem
lítur að meistaraflokki. Við erum með
frábæra stjórn og frábæran þjálfara og
allt starfsfólkið í kringum liðið er að
leggja sig vel fram.“
Valsblaðið 2008
53