Valsblaðið - 01.05.2008, Side 65

Valsblaðið - 01.05.2008, Side 65
Ferðasaga við með því að allar í liðinu voru búnar að skora nema markmaðurinn. Eftir leik- in fórum við aftur í Liseberg til að klára öll tækin aftur. Um kvöldið voru fyrri tónleikarnir með Bruce Springsteen. Við opnuðum gluggana á herberginu okkar og hlustuðum á tónleikana. Þetta kvöld eignaðist Bruce nokkra nýja aðdáendur. Dagur 5. Frábær sigur á stekur liði og óvænt heimsókn Fjórði leikurinn var erfiðari en endaði með nokkuð stórum sigri okkar. Við átt- um annan leik nokkru seinna um daginn. Fyrir leikinn vissum við strax að þarna vorum við að fara að mæta erfiðasta lið- inu í riðlinum. Meiri að segja var sagt við okkur að halda tapinu í lágmarki. Leik- urinn byrjaði og eins og allir héldu voru þær sterkari aðilinn og lentum við strax undir og það sem hjálpaði okkur ekki var að oft var verið að reka okkur útaf og vorum við því einum jafnvel tveimur færri meirihluta leiksins. Þegar stutt var eftir, við undir og færri, ákváðum við að nú væri komið nóg. Við stigum upp og þjöppuðum okkur saman og enduðum með að vinna leikinn með tveimur mörk- um. Samstaðan eftir leikinn var mikil og grétum við allar þegar okkur var ljóst að við hefðum komist í gegnum riðilinn tap- lausar og töldum fyrsta sætið í riðlinum vera okkar. Mœðgurnar Bryndís Bjarnadóttir og Auður Þórarinsdóttir. Um kvöldið var loks komið að ball- inu og gerðu sig allar tilbúnar og var far- ið samferða en sögurnar þar fara ekki mikið lengra en kvöldið endaði allavega á McDonalds eins og svo mörg önn- ur kvöld hjá okkur. Samt skyggði aðeins á gleðina þegar við vorum að gera okk- ur tilbúnar fyrir ballið fengum við sím- hringingu um að við hefum lent í öðru sæti í riðlinun og þyrftum því að spila leik snemma daginn eftir. Dagur 6. Úr leik og verslað í sorgum okkar Fátt segir af leiknum sem leikinn var að morgni þessa dags. Staðreyndin var hins vegar sú að fyrsta tap okkar leit dagsins Ijós og þar með höfðum við leikið okk- ar síðasta leik á mótinu. Við ákváðum því að fara og versla í sorgum okkar. Um leið og komum í mollið tókum við allar á rás og hlupum í skemmtilegustu búðirn- ar að okkar mati. Allar komu heim með fleiri en einn poka og allar ánægðar með árangur dagsins í búðunum. Kvöldið var frjálst og mátti hver og ein velja hvað hún vildi gera, sumar fóru á ballið, sum- ar á Mac Donalds og nokkrar bara uppí skóla. Við vissum að ferðin væri alveg að verða búin svo að nú var um að gera að njóta hverrar stundar. Dagur 7. Góð heimferð og heima er best Við vöknuðum í rólegheitunum, gengum frá herberginu og fengum okkur morgun- mat í bakaríi. Við fórum í bæinn og lét- um daginn bara líða sumar versluðu og aðrar fóru t.d. á MacDonalds. Við fórum með rútu á flugvöllinn og allt gekk vel. Allar vorum við orðnar þreyttar og því ánægðar að komast hver í sitt rúm, það urðu miklir fagnaðarfundir á Keflavík- urflugvelli þar sem foreldrar tóku á móti börnunum. Þó að maður sé fegin að komast heim til sín þýðir ekki að maður hefði vilj- að sleppa ferðinni. Að fara á Partille cup er eitthvað sem allir sem æfa handbolta ættu að prófa a.m.k. einu sinni. Þama gerast hlutir sem aldrei annars myndu gerast, maður kynnist fullt að fólki en mikilvægast af öllu sem gerist er að lið- ið kynnist betur og stelpumar skilja bet- ur hverjar aðra sem gagnast bæði innan og utan vallar. ! 3 W ' Handboltaskóli Vals 2008 Handboltaskóli Vals 2008 stóð í 5 daga þar sem farið var vel í gmnn- þætti handboltans og alls konar gabbhreyfingar. Mætingin var mjög góð og voru 25 böm fyrir hádegi og 22 börn eftir hádegi. Skólinn var aðallega fyrir 10-12 ára krakka og hann. gekk mjög vel og voru krakk- arnir mjög áhugasamir allan tímann. Heimir Örn Árnason sá um nám- skeiðin og Elvar Friðriksson var aðstoðarmaður. í lok námskeiðsins var flott og vel heppnuð pylsuveisla. Heimir Örn Arnason Valsblaðið 2008 65
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.