Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Side 3
Nokkur orð
um
kristmdómsfræðslu barna.
I.
í þriðja ári >tímarits um uppeidi og mentamál«
íbls. 1—17. hefi eg ritað greinarkorn um barna-
•spurningar; var það einkum efni þeirrar greinar, að
benda á ýmislegt það í barnaspurningum, er gæti
•orðið til skýringar efninu, einlcum dæmin: almennu
dæmin, biflíuda'min og önnur sögudæmi. Enn bæði
var það, að grein þessi var stutt, enda setti hún sér
þröngt svið til að fara, nl. að eins spurningalagið,
og fleira er það snertir. Eg gat þess þar og, aðeg
mundi ef til vill síðar rita betur urn þetta efni. Eg
veit að sönnu, að tímarit þetta er svo lítið, að þar
verður ekki sett fram nein samfeld vísindaritgerð
um kristindómsfræðslu barna (kateketík), enda er eg
•ekki fær til þess. Enn nokkurar bendingar og hug-
leiðingar í þá átt hygg eg að ætti vel við að koma
hér fram með fyrir það.
Meðan því er haldið fram, að það sé mikils
varðanda fyrir hvern mann, að hann fái uppfræð-
ingu i kristindómi sinum, o: í þeim atriðum, er snerta
•sáluhjálparefni þeirra, er það og nauðsynlegt, að
þeir fái fræðslu í þeim efnum. Það er skilyrði fyrir