Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Page 37
Frá Ameríku.
-A.meríka er stundum kölluð skólanna land, og þeg-
ar svo er tekið til orða, nœr það einkanlega til
Bandaríkjanna. Það er alkunnugt, að hvergi ívíðri
veröld er lagt jafnmikið í sölurnar til að mennta
alþýðuna eins og gert er í Bandaríkjunum. Alþýðu-
skólarnir eru óskabörn þjóðarinnar, og þessum
óskabörnum sínum veitir hún alla sína stórkostlegu,
einkennilegu rausn. Fyrir utan hið höfðinglega ör-
læti af stjórnarinnar hálfu við þessar stofnanir, legg-
ur þjóðin fúslega á sig skatta og skyldur þeim til
viðhalds og uppbyggingar, og undan þeim álögum
er ekki kvartað, þó þær sjeu víða tiltölulega þyngstu
skattbyrðirnar, sem alþýða leggur sjer á bak.
Það er auðsætt, að til þess að alþýðuskólarnir
geti orðið að verulegum notum, þarf að vera kostur
á færum og hæfilegum kennurum við þá, og í því
augnamiði eru sjerstakar stofnanir, hinir svokölluðu
Normal Schools, settar á fót og haldið við á opinber-
an kostnað; þar er kennsla veitt ókeypis þeim, sem
vilja takast á hendr kennslustörf. Fyrir utan hin-
ar algengu námsgreinar, sem á skólum eru kennd-
ar, stunda nemendurnir þar »Pedagogy«, það er, þá