Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Qupperneq 38
3G
list að kenna öðrum, eða öllu heldur, að kenna
börnum og stjórna þeim.
Þegar vort nýja ríki Norður-Dakota var komið
til lögaldurs og var tekið inn í ríkjasambandið sem
fullmyndug systir, var arfleifð hennar frá sambands-
stjórninni, sem henni var gefln til umráða með því
skilyrði, að verja henni eingöngu til þess að mennta
börnin sín, sú, sem nú skal greina: Til alþýðuskól-
anna 2 ferhyrningsmílur af öllu landi úr hverjum
36 mílum, nema því landi, sem stjórnin undanskildi
sjer til sinna þarfa. Þetta land, sem er einnátjándi
partur af öllu laudi ríkisins, er höfuðstóll, sem ríkið
má annaðhvort leigja eða selja, en þó má ekkert
skólaland selja fyrir minna en tíu dollars ekruna.
Leiguna af þessum löndum eður vöxtuna af and-
virði þeirra má að eins brúka, og ekki öðruvísi en,
sem kennslulaun; höfuðstólinn sjálfan má ekki skerða.
Til annara mennta- og velgjörðastofnana gaf stjórnin
500,000 ekrur af landi.
Eptirfylgjandi menntastofnanir hefur löggjafar-
þing ríkisins þegar stofnsett eður ákveðið að stofn-
setjast skuli innan ríkisins. Háskólann og náma-
skólann í Grand Forks (University and School of
Mines); jarðyrkjuskólann (Argicultural College) í
Fargo; tvo kennaraskóla (Normal Schools); heyrn-
arlausra og mállausra skóla (Deaf and Dumb Asy-
lum) í DevilsLake; iðnaðarskóla (Industrial School);
trjáplöntunarskóla (School of Forestry) og Scientific
School; blindra-hospital og skóla í Pembina County.
Þegar eru komin út fyrstu skólalögin fyrir nýja ríkið.
Ákveða þau, að löggjafarþing ríkisins stofni fría op-
inbera skóla, sem standi í sambandi hver við ann-
an, og veiti kennslu í sömu námsgreinum, að svo