Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Page 39

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Page 39
37 miklu leyti sem við verði komið, upp í gegn um al- þýðuskólana, kennaraskólana og latínuskólana (Col- legiate Course). Það sýnist vera andi og tilgangur laganna, að gera almenningi sem hægast fyrir að hugsanlegt er, með það að ná til skólanna. Til dæmis, ef einn eða fleiri heimilisfeður, sem eiga eður hafa umsjón með uppeldi 9 eður fleiri barna á skólaaldri, og sem ekld búa skemmra en tvær mílur frá næsta skóla, biðja skólanefndina að sjá sjer fyrir skóla, er skólanefnd- in skyldug til að útvega þeim kennara á opinberan kostnað, svo framarlega sem húsrúm geti fengizt. Sje bænaskráin undirskrifuð af foreldrum eður fjár- haldsmönnum 12 eður fleiri barna á skólaaldri, sem eiga ekki skemra en 2 mílur að sælcja til næsta skóla, og ef ekkert hæfilegt hús til að halda skóla i fæst leigt, verður skólanefndin að kalla til fundar í skólaumdæminu. Fund'urinn skal ákveða skólasæti ekki lengra frá neinum þeim, sem undir bænar- skrána skrifaði, en tvær mílur enskar. Ákveði ekki nefndur fundur neitt skólasæti, eins og um erbeðið, er það skylda skólanefndarinnar að velja sjálf sæti fyrir skóla þann, sem um er beðið og byggja þar skólahús, En kostnaðurinn við þessa skólabygging má ekki fara fram úr 700doll. í öllum skólamál- um hafa konur jafnrjetti við karla. Alþýðuskólunum er stjórnað af þar til kjörnum nefndum. Þrír menn skipa stjórnarnefndina; þar fyrir utan er einn fjehirðir kosinn, sem gætir skólafjárins, en hann er ekki J skólastjórninni. Skólanefndin kýs sjálf skrifara, sem bókar alla nefndarfundagjörninga og gegnir öðrum skrifstörfum nefndarinnar. Skólanefndin hefur alla umsjón skól-

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.