Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Side 47
45
]því að þau eru 6 ára og til þess erþau eru21 árs,
«vo að ef barnið byrjaði að sækja einhvern þennan
skóla, undir eins og það er komið á skólaaldur, og
hjeldi áfram námi sínu við hann, þar til það væri
komið af skólaaldri, næði sá námstími yfir fimmtán
ár. Er það langur námstími, og ef honum væri vel
varið, gæti nemandi náð mikilli menntun á þeim tíma,
■enda þó kennslutíminn væri ekki nema 6 mánuðir á
ári. En auðvitað kemur það aldrei fyrir, að nokk-
urt eitt barn sæki alþýðuskólana allan þann tíma,
sem það er á skólaaldri, og er það fyrsta ástæðan,
að ekkert barn, sem hefur nokkurnveginn hæfileika
til að nema, þarf að verja svo löngum tíma, til að
nema það, sem við þá er kennt. Yið fæsta þessa
skóla er kennt annað en hinar lögboðnu námsgrein-
•ar, því naumast verður komið við að kenna fleira,
þar sem er að eins einn kennari, en nemendur á
svo mismunanda námsstigi. Þegar svo unglingurinn
er orðinn fullnuina í því, sem kennt er við þessa
skóla, þá annaðhvort hættir hann skólanámi sínu eða
að öðrum kosti leitar til hærri skólanna.