Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Side 66

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Side 66
64 þeir g'jöri almenning hygginn, ráðvandan og guð- hræddan. Skólaáginn má ekki vera strangur, en kennslu ætti að haga þannig, að börnin legðu fram krapta sína af fúsum vilja, en lærðu ekki af nauð- ung. Kennarinn þarf að gjörkynna sjer barnseðlið og haga kennslu sinni og uppeldi eptir því. Námsaldrinum skiptir Comeníus í fjögur sex ára tímabil, og ætlast hann til, að sinn skólinn sje handa hverju tímabilinu. Fyrstu sex árin eiga börnin að vera í heimilisskólanum, eða móðurskólanum, er hann svo kallar; sá skóli á að vera á hverju heimili. Þá tekur við barnaskólinn handa barninu frá því það ■6—12 ára; að því búnu kemur latínuskólinn eða lærði skólinn, handa þeim, er þann veg ganga, frá 12—18 ára aldurs, og loks háskólinn frá 18—24 ára. Coraeníus skrifaði sjerstaka bók handa móður- skólanum; sýnir hann þarfram á, hve undra margt börnin geti lært á fyrstu árunum, og hve mikið sje undir því komið, að fyrsti grundvöllurinn sje vel og haganlegalagður; hann bendir mönnum þar á margt, er Fröbel, frumkvöðull barnagarðanna, síðar fylgdi fram og fjekk framkvæmt í verki. Hann kveður það áríðandi, að móðirin byrji svo fljótt sem unnt er að fræða börnin um það, sem nauðsyn sje að vita síðar meir. Á 6 fyrstu árunum geta börnin lært að þekkja nokkuð úr ríki náttúrunnar; þau geta lært að þekkja vatn, jörð, lopt, eld, járn, trje, fugla o. s. frv. Um líkamann geta þau nokkuð lært. Ljósfræðina má gefa þeim hugmynd um; þau læra að þekkja ljós og skugga, höfuðlitina o. s. frv. Um stjörnu- fræðina geta þau fengið nokkuð að vita; þau má fræða urn himininn, sól, tungl og stjörnur. I landa- .

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.