Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Side 79

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Side 79
77 breytni, blíð orð í viðræðum, gott mál á bak! Tala ■aldrei verr um þau á bak en brjóst! Ber eigi út bresti þeirra. Gerðu öllum börnum rétt, og varast illyrði og •ónotasemi, hlutdrægni og tortryggni og annað rang- læti. Bjóð þeim aldrei þau ill.yrði, óvirðingarorð eða ■óvirðingarmerki, sem þú eigi myndir bjóða fullorðnum. Ef þú gerir þeim rangt, svo játa það og bæt þeim. Vittu það, að réttlætið er hlutur, sem allir eiga heimting á, og sem allir ættu að geta sýnt öðrum. 'Öllum er eigi gefið að geta elskað heitt og blítt og sýnt ástina í orðum, atlotum og verkum. En allir ;geta gert börnum rétt. Getirðu eigi verið góðurvið þau, þá sneiddu þig hjá þeim. Viljir þau eklci leika við þau, svo spill eigi leik þeirra með glettni eða ■ónotum. Getir þú eigi sýnt þeim blíðuatlot, þá get- ur þú samt varazt að fara illa með þau, meiða og smána þau, stjaka þeim og stríða, hæða þau og hræða. Kallir þú þau ekki til þín að skemmta þeim, •svo rek þau ekki frá þér, er þau koma. Legg nokkuð •á þig til að gleðja þau. Eitt sinn þekkti eg gamlan heið- virðan bónda, er leiddist spil, en gerði það þó oft fyrir tökubarn sitt að spila við það. Arg það og kuldi, sem viða, allt of viða, er beitt við börn, ætti ■ekki einungis alveg að leggjast niður, heldur ættu allir að hafa hugfast, að gera jafnan eitthvað, til að gleðja og manna sérhvert barn, sem þeir búa saman við. En láttu börnin líka vita, að réttlætið lætur ekki að sér hæða. Þótt þú álitir þau góð eins og ■engla, þá raáttu ekki samt gera þau að goðum. Gæt þess, að slíkir englar geta fallið og falla oft og þurfa því áminningar og ef til vill stundum hirtingar við. Ifisbjóði þau virðingarelsku þinni með óhlýðni og

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.