Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Side 88

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Side 88
86 Og þegar það loksins uppgötvar brot hans og sér Ijótleik þess, fær það enn meiri óbeit á honum, en það hefði fengið, ef hann liefði játað það í tíma fyrir því. Játi hann það og bæti, eins og áður er sagt, þá mun sérhvert óspillt barn virða hann fyrir játn- ing hans og bót. Og virðing sú mun optast — sé brotið eigi því stærra eða því oftar framið — verða nóg til þess, að setja hann jafnhátt (ef eigi hærra) í áliti lijá því og hann var, áður en liann braut. Gjöri nú eitthvert barn gys að sjálfri yfirbót hans eða afsökunarbeiðni, þá sýnir það með því, að það er spillt eða þekkir eigi eitt af meginboðum kristilegs siða- lærdóms og þarf því að lagast og uppfræðast. En bezta lögunin og fræðslan fyrir það er þessi nefndi strangleiki kennarans við sjálfan sig. Strangleiki þessi styrkir siðferðisöfi hans og veitir honum fyllsta rétt og kjark til að heimta, að barnið hlýði siðlög- unum og gegni boðum hans. Eg hefi gjört þetta og allt farið vel, enda hef eg nú eingöngu átt við góð börn sem kennari. En ekkert barn er svo spillt, að els/ca og réttlœti ekki bæti það. Guðmundur IJjaltason.

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.