Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Page 97

Tímarit um uppeldi og menntamál - 01.01.1892, Page 97
95 kvað svo á, að leita skyldi álits barnakennara og alþýðukennara ura það, hverja stafsetningu þeir mundu helzt kjósa, og skyldi þá aptur taka málið til nýrrar athugunár og uraræðu. Þórhallur Bjarnarson, prestaskólakennari, var frummælandi sögukennslunnar. Taldi hann söguna svo menntandi visindi, enda svo auðkennda börnum, ef rjett væri á haldið, að hún ætti að sjálfsögðu að vera kennslugrein í barnaskólum. En fyrst ,um sinn lilyti þetta mál að stranda á því, að kennslubók væri engin til, er hentug væri til afnota við slíka1 ' kennslu. Hann gaf nokkrar bendingar um það, ‘ hvernig kennslubók í sögu handa börnum ætti að sinni ætlun að vera samin. Fundurinn var yfir höf- uð að tala á sama máli og formælandi, og fal stjórn kennarafjelagsins að fara þess á leit, að stjórnin fengi fje nokkurt til umráða, til þess að borga rit- laun og styrkja útgáfu kennslubókar í sögu, svo og annara kennslubóka, er mest væri þörfin á. Engin mál voru uppborin af hálfu fjelagsmanna, og ekki gerðist að öðru leyti neitt markvert á fundinum. Fjelagsmannatala var lík og á seinasta fundi. Tveir höfðu dáið á þessu ári: E. Tli. Jónansen amtmað- ur og Sveinn búfræðingur Sveinsson; tveir nýir fje- lagsmenn bættust við, en 3 höfðu sagt sig úr fje- laginu. Sýning skólavinmi. Samkvæmt uppástungu frá forstöðukonu kvenna- skólans á Ytriey, og eptir ákvæði aðalfundar kenn- arafjelagsins í fyrra, boðaði stjórn fjeiagsins til sýn- ingar ýmiss konar skólavinnu, og skyldi sýningin vera samfara ársfundi tjelagsins í sumar. Þeir skólar, er sendu muni á sýninguna, voru: Jcvennaslcólarnir allir, nema kvennaskóli sá í Reykja- vík, er frú Thora Melsted veitir forstöðu, og af barnaskólum að eins barnaskólinn í Reylcjavik. Svo hafði og skólastjóri Morten Hansen sýningu ýmissa kennsluáhalda, eins og á seinasta aðalfundi. Ekki var sýning þessi fjölskrúðug, og allt of

x

Tímarit um uppeldi og menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um uppeldi og menntamál
https://timarit.is/publication/134

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.