Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Qupperneq 41

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Qupperneq 41
41 Starfsfólkið hefur öðlast meira öryggi í samskiptum við alla foreldra og er áræðnara að taka upp viðkvæm mál. í rýnihópaviðtali þar sem þetta var til umræðu sagði einn leikskólakennari til dæmis frá því þegar nokkrir drengir veittust að víetnamskri ömmu sem talaði sitt mál við barnabarnið þegar hún kom að sækja það í leikskólann. Drengirnir hermdu eftir konunni, glenntu sig dónalega, hlógu að henni og einn þeirra sló í rassinn á henni. Leikskólakennarinn sem var vitni að þessu greip strax­ inn í, bað konuna afsökunar og gerði drengjunum grein fyrir því að svona mættu þeir ekki haga sér. Leikskólakennarinn lýsti því hve þær tóku þetta báðar nærri sér „… ég sá það bara að hún var alveg miður sín, hún var alveg jafnmikið miður sín og ég. Það var alveg ömurlegt.“ í viðtalinu kom fram að starfsfólkið hafði mikið rætt þetta atvik og velt fyrir sér hvernig hægt væri að nýta tungumál barnanna meira í leikskólastarfinu til þess að koma í veg fyrir fordóma. Starfsfólkinu fannst líka auðveldara að koma boðum til erlendu foreldranna og nýtti myndir til þess að auðvelda þeim skilning. Það lagði sig meira fram við óframfærna for- eldra: „Maður finnur það líka að foreldrar sem tala ekki góða íslensku, maður leggur sig fram við að ná sambandi og ræða það og útskýra … hvað þeim líður betur.“ Starfsfólkið sýndi foreldrum ýmislegt úr daglegu starfi sem viðkom barninu þeirra. Einn leikskólakennarinn sagði: „Svo tökum við alltaf myndir af öllu og setjum á aug- lýsingatöfluna og þau koma rosalega mikið að skoða það.“ Starfsfólkið sjálft var ekki heldur eins óframfærið í samskiptum við foreldra: „Já, þessi feimni er ekki svona að hefta mann alveg eins mikið. Maður þorir kannski meira líka.“ Starfsfólkinu fannst að foreldrar hefðu við þetta orðið áhugasamari um leikskólastarfið og fengið aukið sjálfstraust í samskiptum. Á­hrif á börnin Eitt af markmiðum rannsóknar okkar var að skoða hvaða áhrif aukin samskipti við for- eldra af erlendum uppruna hefðu á börnin og starfið í leikskólanum. Til þess að gera heimamál og heimamenningu að sjálfsögðum og virtum þætti í leikskólastarfinu var nauðsynlegt að leita til foreldra. Þeir glöddust yfir því að móðurmáli og heimamenn- ingu væri sýnd virðing í leikskólanum og fannst gaman að vera beðnir um eitthvað. Það reyndist því góð leið til að brjóta ísinn í samskiptum starfsfólks og foreldra og hafði jákvæð áhrif á börnin. Greinilegt var einnig að áhugi barnanna á móðurmáli sínu jókst eftir að farið var að sinna betur móðurmáli þeirra og menningu. Þau urðu sum hver áhugasamari um heimaland foreldra sinna og sýndu áhuga á því að fara þangað í heimsókn eins og þessi drengur sem sagði við mömmu sína að hann vildi fara með henni til Taílands: Þú mátt ekki fara alein, ég ætla að fara til Taílands með þér. Ef þú ferð alein þá er það þér að kenna að ég get ekki talað taílensku. Ef ég fer með þér til Taílands þá get ég talað taílensku. Rannsóknir (t.d. Birna arnbjörnsdóttir, 1998; Cummins, 1996) sýna að góður grunnur í móðurmáli er lykilatriði í sambandi við tileinkun annars máls og góð íslenskukunnátta anna ÞorBjörg ingó­lfs­dó­ttir, els­a s­igríð­Ur jó­ns­dó­ttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.