Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Síða 44

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Síða 44
s­am­s­tarf í l e iks­kó­lUm­ V ið­ foreldra Barna af er lenUm­ UPPrUna 44 mæltist það vel fyrir þegar víetnömsk móðir sagði frá móðurmáli sínu og hvernig er að eiga barn í íslenskum skóla. Hér má benda á að í skýrslu um þróunarverkefni um foreldrasamstarf sem unnið var í leikskólanum Dal í kópavogi kemur fram að það gladdi börnin ævinlega þegar foreldrar eða aðrir ættingjar komu í heimsókn. allt leik- skólastarfið í Dal varð opnara og með léttari blæ eftir að starfsfólkið fór að sinna meira samskiptum við foreldra (Leikskólinn Dalur, 2004). Eitt það mikilvægasta sem starfsfólk Sjávarborgar lærði í þróunarverkefninu var að allt frumkvæði að foreldrasamstarfi verður að koma frá skólanum og oft þarf ekki mikið til að brjóta ísinn. Það hjálpar mikið til að fyrsta viðtal sé tekið á heimavelli foreldra og það er mikilvægur liður í að kynnast foreldrum og aðstæðum þeirra. En foreldrar verða líka að finna að þeir séu velkomnir í leikskólann. Til þess eru margar leiðir, bæði formlegar og óformlegar. Jákvætt og hvetjandi viðmót þegar foreldrar koma með börnin og sækja þau í leikskólann skiptir máli eins og Sheila Wolfendale (2000) leggur áherslu á og fjallað var um hér að framan. Starfsfólk þarf að gefa sig á tal við foreldra því smáspjall um barnið og hrós er mikilvægt. Þá má sýna foreldr- um myndir úr starfinu eða eitthvað sem barnið hefur búið til. Slíkt viðmót auðveldar foreldrum líka að sýna frumkvæði ef þá vantar upplýsingar um skólastarfið eða ef eitthvað bjátar á og þeir þurfa aðstoð. Starfsfólk Sjávarborgar lagði sig fram í þessum efnum og það skilaði góðum árangri. Heimaviðtal er fyrsta skrefið til að kynnast væntingum foreldra, aðstæðum þeirra, móðurmáli, heimamenningu, gildum og viðhorfum í barnauppeldi. En slík þekk- ing verður ekki til á einum degi. Hún fæst með jákvæðum og hvetjandi daglegum samskiptum og vilja til að spyrja foreldra og leita ráða hjá þeim þegar þess gerist þörf. Foreldrar geta miðlað heilmiklu um barnið sitt og starfsfólkið ekki síður um leikskólastarfið, hugmyndafræðina og námskrána og hvernig einstakir þættir starfs- ins snerta barnið. Slík samskipti verða að vera á jafningjagrundvelli og einkennast af gagnkvæmri virðingu. Rannsóknir hafa sýnt að það virkar hvetjandi fyrir tvítyngd börn sé starfsfólk af erlendum uppruna í leikskólanum. Því hefur jafnvel verið haldið fram að það sé einn mikilvægasti og áhrifaríkasti þátturinn í aðlögun barna og fjölskyldna af erlendum uppruna sem ekki hafa góð tök á meirihlutamálinu (karran, 1997). Þetta gildir þótt starfsmaðurinn sé ekki af sama þjóðerni og börnin, hann undirstrikar að ekki er nauð- synlegt að allir séu af sama þjóðerni og tali sama mál. allir þekkja mikilvægi aðlög- unar barnsins að leikskólanum. Það má hugsa sér að foreldrar þurfi sína aðlögun líka. Það er hægt að sinna erlendu foreldrunum sérstaklega á meðan þeir dvelja í leikskól- anum með barninu sínu. Þá gefst starfsfólki gott tækifæri til að vígja foreldrana inn í leikskólastarfið. Oft eru þetta fyrstu kynni foreldra af leikskólastarfi. Þarna er hægt að leggja grunn að gagnkvæmum kynnum og byggja upp traust. í Fjölmenningarstefnu fyrir leikskóla í Reykjavík (2006) kemur fram að tvítyngt starfsfólk gegnir miklu hlut- verki í þessu sambandi. Foreldrar gegna lykilhlutverki þegar færa á móðurmál og heimamenningu barn- anna inn í leikskólann. Með því gefst gott tækifæri til að virkja foreldra og kynnast styrk fjölskyldnanna. Þá er ekki síður mikilvægt að börnin sjái að foreldrar þeirra hafa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.