Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Síða 77

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Síða 77
77 4. Spurningakönnun með spili. Börnin svöruðu spurningum um leikskólastarfið með því að taka þátt í spurningaspili. Við­t­öl í þessari rannsókn var farin sú leið að hafa tvö eða þrjú börn saman í viðtölunum, en það hefur reynst vel í öðrum rannsóknum að taka viðtöl við fleiri en eitt barn í einu (Graue og Walsh, 1998; Greig og Taylor, 1999; Jóhanna Einarsdóttir, 2003; Mayall, 2000). Börn eru öflugri þegar þau eru nokkur saman og valdastaða þeirra gagnvart hinum fullorðna verður sterkari þegar þau eru fleiri en eitt í viðtalinu, þau eru líka af- slappaðri þegar þau eru með vinum sínum en ein með fullorðnum og einnig aðstoða börnin hvert annað með svörin, minna á og gæta þess að satt og rétt sé sagt frá. Stuðst var við aðferðir sem Doverborg og Pramling Samuelsson (2003) hafa sett fram við barnaviðtöl, svo og tillögur og ráðleggingar Graue og Walsh (1998). Tveir leikskóla- kennaranemar, sem þekktu börnin og leikskólann, tóku viðtölin sem voru tekin upp á segulband og afrituð. Börnin voru spurð hvers vegna þau væru í leikskóla, hvað þau lærðu í leikskólanum, hvað starfsfólkið gerði, hverju þau mættu ráða í leikskólan- um og hvað þeim þætti leiðinlegt og skemmtilegt, erfitt og ekki erfitt í leikskólanum. Einnig voru þau spurð um væntingar sínar til grunnskólagöngunnar, til hvers þau hlökkuðu og hverju þau kvíddu, hvað þau teldu að þau myndu læra í grunnskólanum og hvers þau myndu sakna úr leikskólanum. Teik­ningar barnanna Teikningar barna hafa verið notaðar í rannsóknum með börnum og þá oftast í tengsl- um við viðtöl, sem kveikja eða sem viðfangsefni fyrir börnin til að vinna að meðan rætt er við þau. Dockett og Perry (2005a) hafa bent á að kostir þess að nota teikningar í rannsóknum með börnum séu: að þær gefi kost á óyrtri tjáningu, börnin geti breytt og bætt við teikningarnar eins og þeim hentar, flest börn séu vön því að teikna og teikn- ingar taka oft tíma og krefjast þess ekki að svarað sé strax­ svo börnin hafi tækifæri til að hugsa málið. Börnin voru beðin um að teikna það sem þeim fannst skemmtilegt og leiðinlegt í skólanum á samanbrotið a4 blað. Á annan helming blaðsins áttu þau að teikna það sem þeim fannst skemmtilegt í skólanum en á hinn helminginn það sem þeim fannst leiðinlegt. Rannsakandinn ræddi síðan við þau um það sem þau teiknuðu og skrifaði útskýringar þeirra niður. Ljósmyndir barnanna Á undanförnum áratug hafa verið gerðar nokkrar rannsóknir þar sem ljósmyndir sem börn taka sjálf eru annaðhvort aðalaðferðin við gagnaöflun eða ein af þeim aðferð- um sem er notuð (Clark og Moss, 2001; Cook og Hess, 2003; Dockett og Perry, 2005b; Hurworth, 2003; Rasmussen, 1999; Rasmussen og Smidt, 2001, 2002). í þessari rann- sókn var farin sú leið að tengja saman ljósmyndatöku og kynnisferð barnanna um skól- ann, eða það sem Langsted (1994) hefur kallað „gönguviðtal“ (e. walking interview). Rannsakandi fékk börnin, eitt og eitt í senn, til að fylgja sér um leikskólann og sýna jó­Hanna e inars­dó­tt i r
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.