Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Síða 91

Uppeldi og menntun - 01.07.2006, Síða 91
1 undirstaða eða grunnur eins og kjörholt og félagar hafa bent á (kjörholt, 2005; kjör- holt, Moss og Clark, 2005). Skólasamfélag þar sem áhersla er lögð á umhyggju, sam- skipti og tilfinningalegan stuðning getur ráðið úrslitum um það að börn skynji sig hæf og sterk og verði virkir þátttakendur í daglegu lífi í leikskólum. Börn eru aðalhagsmunaaðilar leikskólans og þess vegna er eðlilegt að leita eftir skoðunum þeirra þegar leikskólastarf er metið. aðferðafræðilega getur þetta hins vegar verið vandasamt verk og takmörkunum háð. Nauðsynlegt er t.d. að benda á og vara við áhrifum hins fullorðna rannsakanda, sem velur þær aðferðir sem eru notaðar. í þessari rannsókn var reynt að bregðast við þessu aðferðafræðilega vandamáli með því að nota fjölbreyttar aðferðir og fá fullorðna sem börnin þekktu til að annast gagna- öflunina að hluta. Hins vegar verður ekki fram hjá því litið að þegar upp er staðið er túlkun niðurstaðna í höndum rannsakandans og þær verða því að skoðast í því ljósi. Það ber einnig að hafa í huga að þótt notaðar hafi verið fjölbreyttar rannsóknarað- ferðir í þessari rannsókn er sá möguleiki fyrir hendi að þær aðferðir henti betur til að tjá sum viðhorf og sumar skoðanir en aðrar. Tími, staðsetning og samhengi eru mikilvægir þættir þegar gæði í leikskólastarfi eru metin (Dahlberg, Moss og Pence, 1999; Langsted, 1994; Moss, 1994). Þessi rann- sókn fór fram í einum leikskóla á höfuðborgarsvæðinu og stóð í afmarkaðan tíma. Á öðrum tíma, í öðru samhengi, gætu börn haft önnur viðhorf en hér koma fram, þar sem raddir barna endurspegla að mörgu leyti þær aðstæður og það samhengi sem þau eru í (kjörholt, 2005; kjörholt, Moss og Clark, 2005). Þegar við hlustum á börn þurfum við því einnig að skoða á gagnrýninn hátt þær félagslegu og stofnanalegu aðstæður sem þeim hafa verið skapaðar af hinum fullorðnu og þá valmöguleika sem börnunum bjóðast. Bruner og fleiri (Bruner, 1996; Graue og Walsh, 1998; Saljö, 1991; Schweder, 1991) hafa bent á að menntun og kennsla eigi sér stað í menningarlegu samhengi og líf barna og atferli sé hluti af félagslegu kerfi sem er sögulega og menningarlega staðsett. Viðhorf og óskir barna og hvernig þau líta á þátttöku sína og áhrif er því háð umhverf- inu og því samhengi sem þau lifa í. hEiMildir Balen, R., Holroyd, C., Mountain, G. og Wood, B. (2000/2001). Giving children a voice: Methodological and practical implications of research involving children. Pediatric Nursing, 12(10), 24–29. Barker, J. og Weller, S. (2003). “Is it fun?” Developing children centered research methods. International Journal of sociology and social policy, 1(2), 33–58. Bogdan, R. og Biklen, S. k. (1998). Qualitative research in education: An introduction to theory and methods. Boston: allyn and Bacon. Bruner, J. (1996). The culture of education. Cambridge, Ma: Harvard University Press. Cambell-Barr, V. (2003, september). Letting children have their say: What do children think about childcare? Fyrirlestur á ráðstefnu European Early Childhood Research associ- ation, Glasgow. jó­Hanna e inars­dó­tt i r
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.