Búnaðarrit - 01.06.1967, Page 115
HRÚTASÝNINGAR
425
vel gerðir, en bakmjóir. Frosti á Gauksmýri var þó eini
hrúturinn, er náði I. verðlaunum í þeim liluta hreppsins.
í úthlutanum eru margir hrútar mjög háfættir og sumir
hníflóttir, einstaka knappir um brjóst, en þá góðir í
lærum. Fyrstu verðlaun lilutu 17 eða 32.7% sýndra
hrúta. Á héraðssýningu voru valdir Loðinn á Stöpum og
Pjakkur á Ánastöðum ytri, báðir sonarsynir sæðisgjafa
í Laugardælum, og hlutu 1. verðlaun A, Hvítur, Bergs-
stöðum, Durgur, Sauðadalsá, Búi, Stöpum og Þistill, 1 v.,
Anastöðum ytri lilutu I. verðlaun B, til vara á héraðssýn-
ingu var valinn Gulhnakki, 1 v., á Ánastöðum ytri. Allir
þessir hrútar voru einnig sonarsynir eða synir sæðisgjafa
í Laugardælum og Lundi.
Hvammstangahreppur. Þar voru sýndir 17 lirútar, 14
fullorðnir, sem vógu 93.8 kg, og 3 veturgamlir, er vógu
78.3 kg. Fyrstu verðlaun hlutu 5 eða 29.4% sýndra hrúta,
venjuleg þétthýlissýning. Á héraðssýningu var valinn
Kollur Pálma Sigurðssonar og hlaut þar I. verðlaun B.
Ytri-TorfustaSahreppur. Þar var sýning vel sótt og alls
sýndir 86 hrútar, 56 fullorðnir, sem vógu 95.8 kg, og 30
veturgamlir, er vógu 80.2 kg. Báðir aldursflokkar voru
til muna þyngri en jafnaldrar þeirra í lireppnum 1962,
og þeir veturgömlu voru nú þyngri en jafnaldrar þeirra
í öðrum hreppum sýslunnar á þessu liausti. Hrútarnir
voru margir sæmilega góðir og þungir, en skorti þó suma
meiri fyllingu aftan til á malir og í læri. Á sumuin hrút-
unum voru kjúkur í lengra lagi, og eins vottaði fyrir,
að skoltar mættust ekki rétt. Ull var ckki mjög gul mið-
að við sýningarsvæði á þessu liausti. Fyrstu verðlaun
hlutu 30 eða 34.9% sýndra hrúta. Á héraðssýningu voru
valdir Roði Stefáns á Mýrum, er hlaut heiðursverðlaun,
Stubbur Guðmundar, Mýrum, Prúður, Barði og Kurfur
og Tanni á Bálkastöðum hlutu I. verðlaun A, Glókollur
Guðmundar á Urriðaá og Svanur, 1 v., Guðmundar á Mýr-
um, I. verðlaun B. Til vara á héraðssýningu var valinn
Kjaftur Páls á Mýrum.