Búnaðarrit - 01.06.1967, Blaðsíða 236
546
BÚNAÐARRIT
Af nautum voru 5 einlit og 4 skjöldótt, þar af 4 naut
rauð eða rauðskjöldótt og 2 svört eða svartskjöldótt.
Eitt nautanna var liyrnt. Horn hafa verið nokkuð al-
geng í sumum sveitum austanlands, en þeim hefur fækk-
að nokkuð undanfarin ár. Voru nú 11.0% sýndra kúa
hyrndar, en 19.1% reyndust liyrndar á sýningunum fyrir
4 árum, 18.8% hníflóttar eða smáhníflóttar og 70.2%
kollóttar, en á sýningunum 1961 voru aðeins 57.6%
sýndra kúa kollóttar.
Meðalbrjóstummál kúa á svæðinu var 171.5 cm og
hefur aukizt um 5.3 cm frá næstu sýningum áður. Brjóst-
ummál kúa á Austurlandi hefur verið minna en annars
staðar á landinu, en hefur nú aukizt í öllum félögunum,
og kemur hér fram eins og í öðrum landshlutum stækk-
unin, sem hefur átt sér stað í kúastofninum. Ef litið er
á brjóstummál kúa í hinum einstöku félögum, þá sést,
að meðalbrjóstummálið er hvarvetna meira en meðal-
brjóstummál allra sýndra kúa var á sýningunum 4 árum
áður. Mest brjóstummál mældist 186 cm, en það hafði
Gullborg á Skorrastað í Norðfirði.
Hæstu einkunn fyrir byggingu hlutu Rán 3 Helga
Sæmundssonar, Bóli, Mýrahreppi, og Skjalda 4 Halldórs
Guðmundssonar, Ásbrandsstöðum, Vopnafirði, en báðar
þessar kýr hlutu 83.5 stig.
Nautastofninn
Af 9 sýndum nautum hlaut 1 I. verðlaun, 5 II. verðlaun
og 3 enga viðurkenningu. Nautið, sem hlaut I. verðlauna
viðurkenningu, var Draupnir A4, en liann hefur hlotið
þá viðurkenningu áður. ÖIl viðurkenndu nautin voru í
félagseign, en eitt félagsnaut hlaut ekki viðurkenningu,
þar sem það var talið hyrnt.
Hin viðurkenndu naut eru öll aðfengin, og eru 3 xir