Morgunn - 01.06.1957, Blaðsíða 33
MORGUNN 27
margar, andlegar myndir, og allar eru þær raunverulegar.
Sjáandinn getur séð þær og talað við þær“.
Eftir að Ramakrishna andaðist, sá Brahmananda hann
nær því daglega og gat talað við hann. Það verður ekki
séð, að nokkur munur hafi verið á því, hvernig Rama-
krishna, söguleg persóna, og gyðjan Kali, sem aldrei hafði
verið til, birtust Brahmananda.
títhaf andans
í hinni stórfenglegu bók sinni, Líf Ramakrishna (La
Vie de Ramakrishna, París, 1929), segir höf., Romain
Rolland, frá því, að Vivekananda hafi spurt Ramakrishna:
„Hefir þú séð Guð?“ Og að hann hafi svarað: „Já, ég sé
hann eins og ég sé þig, aðeins miklu skýi-ar“. Og hann
bætti við: „En ég sé hann ekki eins og Vedabækurnar
segja frá“. Með því átti Ramakrishna við það, að sú sýn
væri ekki óhlutræn, ópersónuleg sýn. En slíkar sýnir
þekkti hann einnig vel.
Romain Rolland hafði geysilegan áhuga fyrir þessu efni.
Hann reyndi að skilgi-eina það, komast til botns í því.
Þegar Ramakrishna ákallaði hina guðlegu móður og bað
hana í örvæntingu að vitrast sér, og geystist að hinu stóra
sverði, sem hékk í musterinu, féll hann í leiðslu, og í leiðsl-
unni skynjaði hann heilt „úthaf andans“. Þegar hann
vaknaði af leiðslunni hvíslaði hann: „Móðir. Móðir“. —
Romain Rolland segir: „Ég vona að mér verði fyrirgefin
sú staðhæfing mín, en ég er gersamlega sannfærður um,
að Ramakrishna sá ekki hina guðlegu móður, en skynjaði
návist hennar allt umhverfis sig. Hann líkti henni við
úthafið".
Ein skýring þess, er ósögulegar verur birtast mönnum,
kann að vera sú, að sjáendurnir skynja raunverulega eitt-
hvað, sem er æðri veruleiki, og íklæða það því næst mynd-
um úr hugmyndaheimi sínum og gefa því nöfn eins og
K-wang-Yíi, Kali, Shakti, nöfn hinna miklu gyðja.