Morgunn


Morgunn - 01.06.1957, Blaðsíða 51

Morgunn - 01.06.1957, Blaðsíða 51
MORGUNN 45 hreiminn í framburði þess, að það ætti að vera „warn“, sem merkir viðvörun, varaðu þig“. Þessi draumur var svo lifandi og skýr í vitund minni, er ég vaknaði, að hann olli mér talsverðum áhyggjum. Ég var sannfærður um að það væri verið að vara mig við ein- hverju, svo að ég ákvað að 'hafa tal af lækni mínum áður en ég leitaði til tannlæknisins. Venjulega sneri ég mér til vinar míns, Dr. Pace, en hann var nágranni minn, og venjulega leitaði ég ekki til annars, þyrfti ég á lækni að halda. En fáum dögum eftir þetta vildi svo til, að ég átti tal við Dr. Bender, en honum var ég líka vel kunnugur. Ég breytti nú allt í einu út frá venju minni og ákvað að ráðfæra mig við Dr. Bender. Hann var maður stór vexti og þróttmikill, en Dr. Pace var grannur og líkamsbygging hans var veiklulegri. Dr. Bender tók nú til að rannsaka mig, tautaði eitthvað við sjálfan sig meðan á því stóð, en kvaðst ekki hafa fundið neitt athugavert og ekki sjá neitt athugavert fyrir mig að ganga undir svæfingu. Hann kvaðst skyldi sjá um svæfinguna og aðgerðin gæti farið fram í lækningastofu sinni, þegar mér hentaði bezt. Ég minntist ekkert á fyrirætlanir mínar við konu mína, en um nóttina dreymdi hana draum, sem henni féll illa. Hún kvaðst hafa séð mig liggja í rúmi, dáinn, að því er henni virtist sennilegast, en á kinn minni kvaðst hún hafa séð þríhyrningslaga blóðstraum, sem hefði streymt upp eftir kinn minni. En hún kvaðst hafa hugsað með sjálfri sér í draumnum: Ekki getur blóðið runnið upp á við utan á kinninni á honum. Þegar ég sagði henni frá því, að ég ætlaði að láta draga úr mér allar tennurnar í einu, setti hún draum sinn þegar í samband við hina fyrirhuguðu aðgerð, en þetta gerðist þrem vikum áður en aðgerðin fór fram. Hinn ákvarðaði dagur var kominn, nauðsynlegum und- irbúningi var lokið, en ég var fullkomlega rólegur, er ég lagðist á borðið. Ég lá á milli þeirra Dr. Bender’s og Dr. Johnson’s, tannlæknisins, en þeir stóðu sitt hvoru megin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.